Mörg af stærstu fjarskiptafyrirtækjum Evrópu ætluðu að nota búnað frá Huawei við uppbyggingu á miðlægum farsímakerfum vegna 5G. Ákæran á hendur fyrirtækinu hefur sett þessi áform í uppnám.
Huawei er stærsti birgir í heiminum á sviði farsímakerfa. Þá er fyrirtækið næstsöluhæsti framleiðandi snjallsíma á heimsvísu á eftir Samsung en fyrirtækið náði öðru sætinu af Apple í júní fyrra. Huawei var stofnað árið 1987 af Ren Zhengfei sem var áður verkfræðingar hjá kínverska hernum.
Rannsókn yfirvalda í Bandaríkjunum á meintum brotum Huawei á viðskiptaþvingunum gagnvart Íran hefur staðið, með hléum, yfir í um áratug. Ákæran sem gefin var út á mánudag snýr að stórfelldum hugverkaþjófnaði, brotum á viðskiptaþvingunum gagnvart Íran og fyrir að hafa vísvitandi veitt fjármálafyrirtækjum rangar upplýsingar. Ætluð brot snúa meðal annars að fyrirtækinu Skycom sem hefur verið umboðsaðili Huawei í Íran.
Meng Wanzhou, fjármálastjóri Huawei og dóttir stofnanda fyrirtækisins, var handtekin á flugvellinum í Vancouver hinn 1. desember þegar hún var á leið til Mexíkó. Er hún nú í stofufangelsi í Kanada og bíður framsals til Bandaríkjanna vegna ætlaðra brota. Verði hún framseld og dæmd vestanhafs gæti hún átt yfir höfði sér allt að 30 ára fangelsi í Bandaríkjunum.
Verður Huawei útilokað frá uppbyggingu á 5G?
Bloomberg greindi frá því á dögunum að Vodafone Group, sem Sýn hf. hefur samning við vegna notkunar á vörumerkinu Vodafone á Íslandi, hafi ákveðið að setja í biðstöðu kaup á frekari búnaði af Huawei vegna rekstrar miðlægra kerfa.Þessi ákvörðun Vodafone kemur í kjölfar ákvörðunar BT Group um að fjarlægja búnað frá Huawei úr farsímakerfum fyrirtækisins í Bretlandi. Þá er Deutsche Telekom, stærsta fjarskiptafyrirtæki Evrópu og eigandi vörumerkisins T-Mobile, einnig að endurmeta viðskiptasamband sitt við Huawei.
Stjórnvöld aðildarríkja Evrópusambandsins hafa rætt sín á milli hvort það komi til greina að útiloka Huawei frá uppbyggingu á 5G, næstu kynslóð farsímakerfa, í aðildarríkjum sambandsins. Deutsche Telekom hefur hins vegar varað við því og sagt að slík ákvörðun gæti hægt á uppbyggingu kerfanna.
Þá eru kanadísk stjórnvöld að íhuga að koma í veg fyrir að búnaður frá Huawei verði notaður við uppbyggingu á 5G fjarskiptakerfum þar í landi. Engin ákvörðun hefur hins vegar verið tekin um slíkt ennþá.