Betri upplifun en hún átti von á
Halla viðurkennir að hún hafi ekki endilega haft miklar væntingar til ráðstefnunnar í Davos. „Ég hef ekki mikla trú á því að einsleitur hópur sem hefur setið lengi við völd muni í einlægni ræða lausnir á okkar flóknu og fjölmörgu áskorunum sem oft á tíðum bitna meira á þeim sem minna mega sín en þeim sem koma saman á einkaþotum í svissnesku ölpunum. En upplifunin var að mörgu leyti betri en ég átti von á. Fjölmargir koma til Davos til að tryggja að fólk í valdastöðum heyri einmitt raddir þeirra sem berjast fyrir betri heimi.
Unnu New York Times kappræðurnar
Halla og hennar lið unnu kappræður New York Times sem eru vinsæl leið til að takast á við mál sem á eru skiptar skoðanir.„Þeir velja þrjá aðila til að tala fyrir máli sem þeir velja og aðra þrjá til að tala gegn því. Hver aðili fær þrjár mínútur til að flytja sitt mál og áhorfendur láta vel í sér heyra. Við fáum hinsvegar ekki að velja í hvoru liðinu við erum og mitt lið talaði fyrir kynjakvótum í forystu. Við unnum og mögulega leiðir þetta til þess að jafnvægi kynjanna í þessum mikilvægu umræðum um stöðu heimsins verði aukið. Sem stendur eru konur einungis um 20% þátttakenda í Davos og það hófst ekki fyrr en skipuleggjendur sögðu fyrirtækjum að ef þeir sendu fimm aðila á staðinn, yrði einn þeirra að vera kona.“

„Forstjóri tryggingarfyrirtækis deildi t.d. með mér að hans fyrirtæki fjárfesti ekki lengur í kolafyrirtækjum og tryggi ekki lengur olíufyrirtæki. Þegar ég spurði hann hvers vegna, sagði hann mér að dóttir hans hefði spurt hann hvort hann væri stoltur af öllu sem fyrirtækið hans gerði. Þetta olli umsnúningi í hans huga og síðan þá býður hann börnum stjórnarmanna að koma inná fundi með stjórninni. Annar forstjóri olíufyrirtækis sagði mér að dóttir hans hefði spurt hann hvort hann ætlaði að bera ábyrgð á stærsta glæp gegn næstu kynslóð. Hann vinnur nú hörðum höndum að því að breyta sínu fyrirtæki sem og sínum geira til batnaðar. Ég er sannfærð um jákvæð áhrif þess að horfa á heiminn í gegnum augu barna okkar og barnabarna.“
Greta Thunberg hristi upp í hlutunum
Talandi um næstu kynslóð, Halla segir það hafa verið hápunkt ferðarinnar að hitta hina sænsku Gretu Thunberg sem vakið hefur athygli fyrir baráttu sína fyrir umhverfismálum.„Það var algjörlega frábært að sjá hvernig þessi unga sænska stúlka, sem gerðist baráttumanneskja einungis tíu ára gömul, náði að hrista uppí Davos. Ólíkt leiðtogunum sem margir komu á einkaflugvélum, þá kom Greta með lest, það tók hana 31 klst. Við tókum saman þátt í atburði sem fór fram í Arctic Base Camp, þar sem hún gisti í tjaldi í fimbulkulda. Hún var með einföld skilaboð, ef við náum ekki tökum á loftslagsbreytingum, þá er fátt annað fyrir okkur að gera hér á jörð. Hún hitti skipuleggjendur World Economic Forum og fór fram á að loftslagsmálin yrðu aðalmálið árið 2020 og ég treysti nú að svo verði. Ég held það sé óhætt að segja að fátt vakti meira athygli í Davos en þessi unga, hugrakka stúlka.“