Mac DeMarco snýr aftur á Airwaves Iceland Airwaves kynnir 6. febrúar 2019 13:30 Kanadíski tónlistarmaðurinn Mac DeMarco kom fyrst fram á Airwaves fyrir fimm árum og á risastóran aðdáendahóp hér á landi.
Hundruð hljómsveita frá öllum heimshornum koma fram á Iceland Airwaves í ár. Meðal stærstu stjarnanna er kanadíski tónlistarmaðurinn Mac DeMarco. Early Bird miðar eru nú til sölu í takmarkaðan tíma. „Mac DeMarco á stóran aðdáendahóp hér á Íslandi og íslenskir tónlistarmenn dýrka hann. Hann kom fyrst fram á Airwaves árið 2013 og var þá á fyrstu metrunum á ferlinum. Nú selst alls staðar upp þar sem hann kemur fram og lögum hans er streymt hundruð milljóna sinnum,“ segir Sindri Ástmarsson, bókunar- og dagskrárstjóri Airwaves og fagnar komu kanadíska tónlistarmannsins. „Mac DeMarco er að klára nýja plötu og spilar á hátíðum eins og Coachella, Rock Werchter og fleirum í ár. Hann verður því í góðu stuði þegar hann mætir á Airwaves. Við erum ótrúlega spennt fyrir komu hans enda höfðum lengi reynt að fá hann til að koma aftur.“Airwaves fer fram dagana 6. – 9. nóvember, vítt og breytt um miðbæ Reykjavíkur. Þetta í tuttugasta og fyrsta sinn sem hátíðin er haldin og segir Sindri engan verða svikinn af dagskránni. Nú sé tækifærið til að ná sér í miða á góðum kjörum en svokallaðir Early Bird miðar eru nú í sölu í takmarkaðan tíma í viðbót. „Super Early Birds miðarnir eru þegar uppseldir en enn er hægt að kaupa Early Birds miða, á 14.900 krónur. Við hvetjum fólk til þess að næla sér í þá sem fyrst enda bjóðum við metnaðarfulla dagsrká. Fleiri stór nöfn sem við lögðum mikla vinnu í að fá á Airwaves er til dæmis bandaríska hljómsveitin Whitney. Gríðarlega þekkt band sem selur mikið og ekki auðvelt að bóka. Þeir eru loksins að senda frá sér nýja plötu og verða því með nýtt efni,“ segir Sindri. Eitt af markmiðum Airwaves að bóka glænýjar hljómsveitir á uppleið.„Breska sveitin Shame hefur vakið athygli á Íslandi og er í spilun víða. Shame er mjög skemmtileg rokkhljómsveit frá London sem keyrir nýja senu áfram í Evrópu, gítardrifna tónlist en margir hafa talað um að rokkið sé að koma til baka. Nú er það í alvöru að gerast. Það er mjög gaman að sjá þessa þróun og á hátíðinni í ár verða margar athyglisverðar rokksveitir. Til dæmis hollenska hljómsveitin Sons en við sáum þá á Eurosonic og bókuðum strax. The Howl & The Hum frá Bretlandi er virkilega skemmtileg hljómsveit sem minnir á Radiohead og svo mætti lengi telja. Í íslensku deildinni kemur þungarokkið sterkt inn, Auðn og Une Misére. Við erum afar spennt fyrir Une Misére en þeir voru að skrifa undir stóran plötusamning og eru að fara spila víða í Evrópu. Auðn komu meðal annars fram á þungarokkshátíðinni Copenhell síðasta sumar á stóru sviði en þessi bönd fá ekki oft séns á að spila á stóru sviði hér heima. Það er því sérstaklega gaman að gera þeim hátt undir höfði.“„Í poppdeildinni vil ég sérstaklega nefna Anna of the North. Hún er frábær poppstjarna frá Noregi á hraðri uppleið og þá kemur Georgia, stelpa frá Bretlandi fram á Airwaves en hún hefur vakið mikla athygli og er að spila á hátíðum úti í heimi." Sindri segir Iceland Airwaves löngu hafa fest sig í sessi sem eina mest spennandi tónlistarhátíð heims þar sem sameinist ný og spennandi tónlist við framúrstefnulega tónlistarmenn alls staðar að úr heiminum. Tónlistarunnendur flykkist til landsins og á síðasta ári hafi metfjöldi erlendra blaðamanna sótt hátíðina. „Það er mikil viðurkenning fyrir Airwaves og við búumst við enn fleiri blaðamönnum og bransafólki í ár. Það er ekkert nema jákvætt fyrir íslenska tónlistarsenu og nú er opið fyrir umsóknir á netinu þar sem nýjar hljómsveitir geta sótt um að spila á hátíðinni.“Þessi kynning er unnin í samstarfi við Iceland Airwaves.Hér fyrir neðan má sjá brot af stemmingunni í fyrra:
Airwaves Tónlist Mest lesið „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Lífið Nýkominn úr meðferð og „sjaldan verið betur nýsleginn túskildingur“ Lífið Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Lífið Best klæddu Íslendingarnir 2025 Tíska og hönnun Flýta jólasýningunni um klukkutíma vegna lengdar Menning Úr öskunni í eldinn Gagnrýni Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Lífið Laufey á lista Obama Lífið Pete orðinn pabbi Lífið „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Lífið Fleiri fréttir Mikils virði að gefa fólki frelsi til að velja Fjölbreyttir jólasmáréttir frá Kjarnafæði Snéru upp á klassískt jólalag Jólaundirbúningurinn byrjar í KiDS Coolshop Augnablikin sem urðu að minni þjóðar Setningar sem eiga skilið innrömmun Konráð kveður á mildan hátt Helvítis jólapizzan slær í gegn á Eldofninum Íslensk nauta- og sælkeratólg slær í gegn Sú besta hingað til Sjórinn er enn á sínum stað Þroskuð húð fær aukinn ljóma Mzungu þýðir ekki annað en trúgjörn bráð Amor svífur yfir Norðurlandi Aftenging í sítengdum heimi Spennandi nýjungar í íslensku konfekti Metsölulisti og enn betra bókaverð í Nettó Hröð og skemmtileg rússíbanareið EKOhúsið sér um umhverfisvænu jólagjafirnar Ekkert betra en sú þerapía að rifja sitt eigið líf upp Næturserum fyrir hárið – bylting í hárumhirðu Glóandi hættulestur Árni Már og Unnar Ari opna vinnustofuna á laugardaginn Fólk hafði af því miklar áhyggjur að ég ætlaði að „pipra“ Fallegu jólagjafirnar fást í Maí Alvöru ítalskur veitingastaður í hjarta borgarinnar Pöbbkviss 5 söluhæsta spil landsins Gefðu töfrandi skemmtun í jólagjöf Epli með nýja stórglæsilega verslun Konfektleikur í tilefni 90 ára afmælis Nóa Síríus Sjá meira