Dirk nær að vera liðsfélagi feðga: Sautján ár á milli Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. febrúar 2019 22:15 Dirk Nowitzki. Getty/Elsa
Þýska körfuboltagoðsögnin Dirk Nowitzki er enn að spila með Dallas Mavericks í NBA-deildinni þrátt fyrir að vera orðinn fertugur. Fyrir vikið nær hann sérstökum tímamótum. Dallas Mavericks skipti um leikmenn við New York Knicks í síðustu viku og fékk þá meðal annars Tim Hardaway Jr. frá New York. Tim Hardaway Jr. er orðinn 26 ára gamall og hefur verið í NBA-deildinni frá árinu 2013. Faðir hans var einnig NBA-leikmaður og meira að segja stórstjarna í deildinni á sínum tíma. Dirk Nowitzki nær því að vera liðsfélagi feðganna en það liðu þó sautján ár á milli. Tim Hardaway eldri lék í NBA-deildinni frá 1989 til 2003 en frægastur er hann fyrir tíma sinn hjá Golden State Warriors (1989-1996) og Miami Heat (1996-2001). Tim Hardaway eldri lék aftur á móti með Dallas Mavericks tímabilið 2001-02 og var þá liðsfélagi Dirk Nowitzki. Tímabilið 2001-02 þá var Dirk Nowitzki með 23,4 stig og 9,9 fráköst að meðaltali í leik en Tim Hardaway, þá orðinn 35 ára, var með 9,6 stig og 3,7 stoðsendingar í leik. Dirk Nowitzki er væntanlega á sínu síðasta tímabili með Dallas Mavericks en hann er þó með 14,8 stig að meðaltali í vetur. Þetta er orðið liðið hans Luka Doncic en slóvenski nýliðinn er með 23,2 stig, 7,9 fráköst og 6,1 stoðsendingu að meðaltali á sínu fyrsta tímabilið í NBA-deildinni. Doncic er líka enn bara 19 ára gamall.
NBA Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Óvænt alveg hættur Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Fótbolti Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport „Ótrúlega heilbrigður og flottur hópur“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira