Innlent

Tveir miðahafar lönduðu fyrsta vinningi

Atli Ísleifsson skrifar
Fyrsti vinningur gekk út í Lottóinu í kvöld.
Fyrsti vinningur gekk út í Lottóinu í kvöld. vísir/vilhelm
Tveir heppnir miðahafar lönduðu fyrsta vinningi í útdrætti kvöldsins í Lottóinu. Unnu þeir báðir tæpar 3,9 milljónir króna.

Í tilkynningu frá Íslenskri getspá segir að einn miðinn hafi verið seldur í áskrift en hinn á lotto.is. Þá var einn miðahafi með 2. vinning og vann 340 þúsund króna.

Vinningstölurnar í útdrætti kvöldsins voru 1, 3, 6, 21 og 31. Bónustalan var 34.

Enginn var með allar tölur réttar í Jókernum, en tveir miðahafar unnu 100 þúsund krónur eftir að hafa verið með fjórar réttar tölur í réttri röð. Miðarnir voru annars vegar keyptir á N1 við Hafnargötu í Reykjanesbæ og hins vegar í áskrift.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×