Læti í nýliðunum: Sjáðu hvernig Skagamenn fóru með Stjörnuna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. febrúar 2019 13:30 Skagamenn fagna einu af mörkunum sínum. Mynd/S2 Sport
Skagamenn mæta aftur í PepsiMax deildina í sumar og nú undir stjórn Jóhannesar Karls Guðjónssonar. Ef marka má úrslitin á undirbúningstímabilinu þá gæti ÍA haldið í þá venju að koma að krafti aftur upp í efstu deild. „Skagamenn, Skagamenn skoruðu mörkin,“ var sungið á árum áður og það gæti kannski átt aftur við á Íslandsmótinu í sumar. Skagaliðið fór þannig mjög illa með Stjörnumenn í Lengjubikarnum á dögunum og unnu bikarmeistarana 6-0 í beinni á Stöð 2 Sport 4. Jóhannes Karl Guðjónsson er búinn að setja saman athyglisvert lið sem vann Inkasso deildina á síðasta tímabili og hefur unnið tvo fyrstu leiki sína í Lengjubikarnum. Fyrir 6-0 sigurinn á Stjörnunni þá vann ÍA 2-0 sigur á Leikni R. ÍA komst í 1-0 á 14. mínútu, var 3-0 yfir í hálfleik og skoraði síðan tvö síðustu mörkin á síðustu sex mínútunum. Gonzalo Zamorano Leon kom til ÍA frá Víkingi Ólafsvík og þessi eldfljóti framherji var með þrennu á móti Stjörnunni. Hin mörkin skoruðu þeir Þórður Þorsteinn Þórðarson og Viktor Jónsson auk þess sem eitt markið var skráð sem sjálfsmark. Hér fyrir neðan má sjá mörkin sex sem Skagamenn skoruðu hjá einu besta liði landsins undanfarin sumur.Klippa: Sex mörk Skagamanna á móti Stjörnunni
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Það hjálpar ekki neitt“ Handbolti Rotta hljóp um á grasinu á Old Trafford í miðjum leik Enski boltinn „Haukur og Einar ekki komnir til að vera í stúkunni“ Handbolti Segir Ísland verða að vinna Slóveníu Handbolti Fowler með sína kenningu um þá samningslausu hjá Liverpool Enski boltinn Pavel stakk upp á áhugaverðum skiptum Körfubolti Rúmin á hótelinu valda bakvandamálum: „Nokkrir helvíti stífir“ Handbolti Orðinn þreyttur á lélegum liðum á HM: „Þetta er algjört bíó“ Handbolti Neymar á heimleið? Fótbolti Kominn úr banni en gleðin enn týnd Körfubolti Fleiri fréttir Jónatan Ingi tryggði Val sigur á Fram Víkingar fá mikinn liðsstyrk Valur semur við norskan miðvörð Víkingar með ólöglegan leikmann á móti KR Hin efnilega Arnfríður Auður í raðir Vals Kári segir Atla geta orðið „unplayable“ Atli á leið til Víkings Láki sækir leikmann sem hann þekkir vel Eyþór sóttur í Fylki: „Loksins einhver að koma að leika við þig“ Nýju þjálfararnir byrjuðu á 8-0 sigri á KR Fengu Gumma Ben til að lýsa og stjörnur til að spila í styrktarleik fyrir vin sinn Daninn og Svíinn á skotskónum í sigri Vals Stórsigur hjá KR-ingum Ungir strákar í HK halda styrktarleik fyrir veikan vin sinn Alex Þór aftur í Stjörnuna Yfirgefur æskufélagið og semur við Þrótt „Hann er mjög eftirminnilegur og mér þykir vænt um hann“ „Himinlifandi“ eftir að hafa landað fyrirliða Fylkis KA fær lykilmann úr Eyjum Íslandsmeistarinn Andri Rafn áfram í röðum Breiðabliks Brazell ráðinn til Vals Gísli Gottskálk eftirsóttur í Póllandi Berglind Björg í raðir Breiðabliks Fullt af leikjum fyrir páska og langt hlé hjá konunum „Ég trúi því að frábært geti alltaf orðið ennþá betra“ Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Logi Ólafs kveður eftir áratugastarf í MH Yfirlögfræðingur KSÍ verður framkvæmdastjóri Víkings Sjá meira