Veiðileiðsögunámið er hagnýtt og nýtist í senn starfandi leiðsögumönnum og áhugasömum aðilum sem hafa áhuga á að sinna slíkri leiðsögn. Námið gefur innsýn í grunnatriði og ítarlegri þætti er varða veiðileiðsagnarþjónustu. Sérfróðir leiðsögumenn kenna undirstöðuatriði stangveiða og sérfræðingar miðla fróðleik um fiskana er við sögu koma og vistfræði þeirra.
- Meðal kennsluefnis eru undirstöðuatriði er varða líffræði og lífshætti íslenskra ferskvatnsfiska. Meðal annars er fjallað um árstíðabundnar göngur fiska, gönguhegðun þeirra í ferskvatni og sjó og samspil þátta er koma við sögu.
- Farið er yfir þætti er varða umgengni leiðsögumanna við veiðimenn allt frá móttöku þeirra, til veiðanna og annara ráða er varða dvöl í veiðihúsum.
- Farið verður í tveggja daga ferð í Ytri Rangá þar sem tekin verður fyrir kasttækni með einhendum og tvíhendum.
- Lögð er áhersla á Skyndihjálp og áfallahjálp þar sem litið er sérstaklega til þátta er tengjast hættum við ár og vötn.
- Farið er yfir handtök er varða frágang á afla eftir veiði, blóðgun og flökun á fiski. Samhliða verður farið yfir grunnþætti sem varða meðhöndlun fiska með hliðsjón af "veiða og sleppa" veiðihættinum.
- Allir leiðbeinendur hafa áratuga reynslu sem leiðsögumenn eða vísindamenn hver á sínu sviði.
- Námið er alls 70 stundir og fer bæði fram í kennslustofu og á bökkum Ytri Rangár.
Þröstur Elliðason, fiskeldisfræðingur - Strengir
Jóhannes Sturlaugsson, líffræðingur – Laxfiskar
Jóhannes Hinriksson, rekstrarstjóri – Ytri Rangá
Reynir Friðriksson, sjávarútvegsfræðingur –
Fulltrúi frá Landsambandi veiðifélaga
Björn Rúnarsson, Vatnsdalsá.
Björn Theodórsson, fiskeldisfræðingur og leiðsögumaður
Kristinn Helgason, Landsbjörg
Sr. Bragi Skúlason, Landspítalinn
Nánari upplýsingar og skráning fer fram í síma 898-7765 Friðjón eða fs@menntun.is