Barnabarn Judith, Catherine Streng, birti ljósmyndir af atburðarásinni á Twitter-síðu sinni á miðvikudag, við góðar undirtektir. Judith kom hingað til lands ásamt syni sínum, Rod Streng, síðastliðinn laugardag en mæðginin komu við í Jökulsárlóni á þriðjudag, með fyrrgreindum afleiðingum.
Flaut út á haf í „hásætinu“
„Þetta [ísjakinn] var í laginu eins og kjörinn staður til að sitja á. Þú sérð það með því að skoða lagið á honum og ég hugsaði, jæja, þetta lítur út fyrir að vera skemmtilegt,“ segir Judith í samtali við ABC-fréttastofuna.
„Þegar ég fór upp á hann byrjaði hann að riða og það var alda á leiðinni. Gríðarstór alda kom aðvífandi og þá byrjaði hásætið að velta og ég fann að ég var að renna af því.“
Judith kveðst hafa haldið að jakinn væri öruggur og skorðaður á sínum stað. Máli sínu til stuðnings nefndi hún að nokkrar stúlkur hafi tyllt sér í „hásætið“ á undan henni, án vandkvæða.
„En ég er ekki mjög þung. Þannig að það hefur líklega verið auðveldara að fljóta af stað með mig.“
Tækifæri til að verða loksins drottning
Þá er Judith upplitsdjörf þrátt fyrir hrakfarirnar í lóninu.„Þú veist, ég óskaði þess alltaf að verða drottning. Ég meina, láttu ekki svona, þetta var tækifærið.“
Catherine, sonardóttir Judith, lýsti því í viðtali við Vísi í vikunni að Flórídamaður að nafni Randy LaCount hafi komið ömmu sinni til bjargar. Henni varð því ekki meint af hinu stutta ferðalagi út á rúmsjó.
Þá hafa fleiri erlendir miðlar fjallað um mál Judith, þar á meðal bandaríska Fox-sjónvarpsstöðin sem birti frétt í dag byggða á viðtali ABC.