Segja Viktor Gísla á leið til Danmerkur Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. apríl 2019 10:30 Viktor Gísli þykir mikið efni. vísir/bára
Viktor Gísli Hallgrímsson er á förum til danska úrvalsdeildarliðsins GOG samkvæmt heimildum RÚV. Ef satt reynist verða þrír Íslendingar í herbúðum GOG á næsta tímabili. Óðinn Þór Ríkharðsson leikur með GOG og Arnar Freyr Arnarsson gengur í raðir liðsins í sumar. Viktor Gísli, sem er 18 ára, hefur leikið með Fram í Olís-deildinni undanfarin þrjú tímabil. Fram endaði í 10. sæti deildarinnar í vetur. Viktor Gísli var með 31,5% markvörslu á tímabilinu. Viktor Gísli hefur leikið með yngri landsliðum Íslands og hefur einnig leikið með A-landsliðinu. Hann var valinn í íslenska hópinn sem mætir Norður-Makedóníu í undankeppni EM 2020 í vikunni. Allir þrír markverðirnir sem eru hjá GOG yfirgefa félagið eftir tímabilið. Norðmaðurinn Ole Erevik leggur skóna á hilluna, Victor Bang fer til HÖJ og Frank Mikkelsen til Ringsted. Sænski reynsluboltinn, Dan Beutler, er hins vegar á leið til GOG. Hann er 23 árum eldri en Viktor Gísli. GOG endaði í 2. sæti dönsku deildarinnar. Eftir landsleikjahléið byrjar úrslitakeppnin um danska meistaratitilinn. Þar er GOG í riðli með Bjerringbro/Silkeborg, Skanderborg og Århus.
Olís-deild karla Mest lesið Englendingar Evrópumeistarar eftir framlengdan leik Fótbolti Einhenta undrið ekki í NBA Körfubolti Leikur Chelsea og Benfica blásinn af Fótbolti FH-ingar flytja Kaplakrika í Laugardalinn Fótbolti „Versta hugmynd sem hefur komið fram“ Fótbolti Penninn á lofti í Keflavík Körfubolti Aðeins Færeyingurinn öflugi hefur búið til fleiri mörk á HM en Elmar Handbolti „Þvílík vika“ hjá Andreu Sport Sjáðu stórkostlegt mark Sveindísar í lokaleiknum fyrir EM Fótbolti Stelpurnar okkar dönsuðu af gleði inn í klefa eftir leik Fótbolti Fleiri fréttir Aðeins Færeyingurinn öflugi hefur búið til fleiri mörk á HM en Elmar Færeyingar töpuðu eftir tvíframlengdan leik Forsetabikarinn rann Íslandi úr greipum Ákvæði í samningi Andra tengt brotthvarfi föður hans Norðmenn græddu á því að halda HM í handbolta Kraftaverk Færeyinga: „Þurfum alla leikmenn sem við getum fengið“ Barðist fyrir Viggó við erfiðar aðstæður: „Ég vildi þetta ekki“ Rúnar framlengir og fer í nýtt hlutverk hjá Fram Íslendingar völtuðu yfir Mexíkó á HM Allir hræðist Gísla Þorgeir: „Þekktasta nafnið í handboltaheiminum“ Viktor Gísli kláraði háskólanám með atvinnumennskunni Ein af hetjum Frakka í Laugardalshöllinni látin Færeyingar efstir þrátt fyrir sigur Íslands í síðasta leik Sautján mörk Elmars ekki nóg gegn Færeyjum Gísli þakklátur fjölskyldu sinni: „Minn stærsti mentor í handboltanum og lífinu“ Átti erfitt með að grípa bolta skömmu fyrir sögulega frammistöðu Strákarnir hófu HM á tapi gegn Rúmenum Tárin runnu þegar feðgarnir föðmuðust eftir afrek Gísla í Meistaradeildinni Enn á ný er Íslendingur á bak við sigur Magdeburg í Meistaradeildinni Gísli fékk „deja vu“: Árangur sem aðeins Íslendingar hafa náð Gísli Þorgeir bestur í annað sinn Gísli Þorgeir og Ómar Ingi Evrópumeistarar Nantes vann bronsið sem Barcelona nennti ekki Hetjuleg harka hjá Ómari og Gísla fleytti Magdeburg í úrslit Misstu sinn besta mann en fóru létt með undanúrslitaleikinn Sonurinn smitaði Aron af handa-, fóta- og munnsjúkdómi Landsmeistari í sextánda sinn á ferlinum Þrjár erlendar til nýliðanna á Akureyri „Stress og spenningur að flytja einn út og þurfa læra á uppþvottavél“ Rúnar látinn fara frá Leipzig Sjá meira