Agla María fékk líka skráð á sig seinna markið í Eyjum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. maí 2019 15:15 Agla María Albertsdóttir. Vísir/Vilhelm
Agla María Albertsdóttir skoraði tvö mörk fyrir Íslandsmeistara Breiðabliks í fyrstu umferð Pepsi Max deild kvenna en ekki eitt eins og fyrst var skráð á skýrslu leiksins. Dómari leiksins (og fjölmiðlar) skráðu seinna mark Blika í 2-0 sigri í Eyjum sem sjálfsmark Eyjakonunnar Ingibjargar Lúcíu Ragnarsdóttur. Þegar betur var að gáð þá kom í ljós að markið skoraði Agla María Albertsdóttir. Agla María skallaði þá inn fyrirgjöf Ástu Eir Árnadóttur en boltinn hafði viðkomu í Ingibjörgu á leiðinni í markið. Skalli Öglu Maríu var hins vegar á markið og því á hún þetta mark. Gunnar Oddur Hafliðason, dómari leiksins, hefur nú breytt skráningunni á markinu og er það þú mark hjá Öglu Maríu. Fyrra mark Öglu Maríu í leiknum var einmitt fyrsta markið sem var skorað í Pepsi Max deild kvenna í vetur.Önnur umferðin fer fram í dag og á morgun. Þrír leikir eru í kvöld og þar á meðal er leikur Selfoss og Breiðabliks á Selfoss sem hefst klukkan 19.15. Sjónvarpsleikurinn er leikur nýliða Keflavíkur og ÍBV sem hefst klukkan 18.00 og er sýndur á Stöð2 Sport 2. Þriðji leikur kvöldsins er á milli Stjörnunnar og HK/Víkings. Sá byrjar klukkan 19.15. Á morgun mætast síðan Þór/KA og Fylkir annars staðar og KR og Valur hins vegar. Hér fyrir neðan má sjá mörkin sem Agla María Albertsdóttir skoraði á Hásteinsvellinum í Eyjum.Klippa: Tvenna Öglu Maríu í Eyjum
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið „Það hjálpar ekki neitt“ Handbolti Rotta hljóp um á grasinu á Old Trafford í miðjum leik Enski boltinn Króatísk goðsögn segir Dag og Cindric hafa lent í rifrildi Handbolti Setti Íslandsmet í klassískri bekkpressu í gær Sport Strákarnir okkar gætu verið ofar og neðar en Slóvenar á sama tíma Handbolti „Haukur og Einar ekki komnir til að vera í stúkunni“ Handbolti Svona hjálpaði Sara fótboltakonum að geta valið bæði fjölskyldu og fótbolta Fótbolti Martröð Norðmanna heima fyrir: „Gjörsamlega hræðilegt“ Handbolti Fowler með sína kenningu um þá samningslausu hjá Liverpool Enski boltinn Elliði skipti út rauðu skónum eftir rauðu spjöldin Handbolti Fleiri fréttir Jónatan Ingi tryggði Val sigur á Fram Víkingar fá mikinn liðsstyrk Valur semur við norskan miðvörð Víkingar með ólöglegan leikmann á móti KR Hin efnilega Arnfríður Auður í raðir Vals Kári segir Atla geta orðið „unplayable“ Atli á leið til Víkings Láki sækir leikmann sem hann þekkir vel Eyþór sóttur í Fylki: „Loksins einhver að koma að leika við þig“ Nýju þjálfararnir byrjuðu á 8-0 sigri á KR Fengu Gumma Ben til að lýsa og stjörnur til að spila í styrktarleik fyrir vin sinn Daninn og Svíinn á skotskónum í sigri Vals Stórsigur hjá KR-ingum Ungir strákar í HK halda styrktarleik fyrir veikan vin sinn Alex Þór aftur í Stjörnuna Yfirgefur æskufélagið og semur við Þrótt „Hann er mjög eftirminnilegur og mér þykir vænt um hann“ „Himinlifandi“ eftir að hafa landað fyrirliða Fylkis KA fær lykilmann úr Eyjum Íslandsmeistarinn Andri Rafn áfram í röðum Breiðabliks Brazell ráðinn til Vals Gísli Gottskálk eftirsóttur í Póllandi Berglind Björg í raðir Breiðabliks Fullt af leikjum fyrir páska og langt hlé hjá konunum „Ég trúi því að frábært geti alltaf orðið ennþá betra“ Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Logi Ólafs kveður eftir áratugastarf í MH Yfirlögfræðingur KSÍ verður framkvæmdastjóri Víkings Sjá meira