Blikar spila næsta heimaleik sinn á heimavelli Fylkis Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. maí 2019 11:15 Fyrsti heimaleikur Blika í Pepsi Max deildinni fer fram í Árbænum. Vísir/Daníel
Blikarnir fara í lautarferð í Árbæinn á föstudagskvöldið í stað þess að fá Víkinga í heimsókn sín í Smárann. Knattspyrnusamband Íslands hefur tilkynnt um breytingar á einum leik í Pepsi Max deild karla og tveimur í Pepsi Max deild kvenna vegna framkvæmda á Kópavogsvelli. Verið er að setja gervigras á Kópavogsvöllinn og hann er ekki enn þá tilbúinn. Leikur Breiðabliks og Víkings í karladeildinni hefur verið færður fram um einn dag og á annan völl. Þá hefur leikjum Breiðabliks og Keflavíkur í kvennadeildinni verið víxlað. Blikar spilar því einn af ellefu heimaleikjum sínum í Pepsi Max deild karla í sumar utan Kópavogs. Leikur Breiðabliks og Víkings í 3. umferð Pepsi Max deild karla hefur verið færður af laugardeginum fram á föstudagskvöldið. Hann fer líka fram á Würth vellinum í Árbæ sem er heimavöllur Fylkismanna. Blikar spilar því tvo leiki á Fylkisvellinum í sumar því þeir mæta Fylkismönnum á vellinum í 8. umferð, 14. júní næstkomandi. Víkingar gátu ekki skipt um leikvöll við Blika því þeir eru eins og Blikar að bíða eftir að sinn gervigrasvöllur verði tilbúinn í Víkinni. Fyrsti heimaleikur Víkinga var á móti FH í gær og fór hann fram á gervigrasvelli Þróttara í Laugardalnum. Vegna framkvæmda á Kópavogsvelli hefur eftirfarandi leikjum verið breytt:Pepsi Max deild karlaBreiðablik – Víkingur R Var: Laugardaginn 11. maí kl. 14.00 á Kópavogsvelli Verður: Föstudaginn 10. maí kl. 20.00 á Würth vellinumJafnframt er neðangreindum heimaleikjum í Pepsi Max deild kvenna víxlað:Pepsi Max deild kvennaBreiðablik – Keflavík Var: Mánudaginn 13. maí kl. 19.15 á Kópavogsvelli Verður: Mánudaginn 13. maí kl. 19.15 á Nettóvellinum (Leikurinn heitir því Keflavík – Breiðablik)Pepsi Max deild kvennaKeflavík - Breiðablik Var: Laugardaginn 27. júlí kl. 14.00 á Nettóvellinum Verður: Laugardaginn 27. júlí kl. 14.00 á Kópavogsvelli (Leikurinn heitir því Breiðablik - Keflavík)
Pepsi Max-deild karla Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Sá húsið sitt brenna til kaldra kola Körfubolti Pálmi í ótímabundið leyfi Íslenski boltinn Shakhtar - Breiðablik 2-0 | Breiðablik átti sín augnablik Fótbolti Uppgjörið: Njarðvík - Stjarnan 101-105 | Langþráður sigur Íslandsmeistarana Körfubolti Erfitt að heyra hvað Orri hefur þjáðst Fótbolti Uppgjörið: Fram - Valur 27-36 | Arnór í banastuði gegn meisturunum Handbolti ÍA - Valur 81-83 | Grátlegt tveggja stiga tap á nýjum heimavelli Körfubolti Eigandi Nott.Forest ákærður fyrir tengsl við glæpagengi Sport Stelpurnar okkar fá ekki leiki vegna sparnaðar Fótbolti Uppgjörið: Álftanes - KR 108-89 | Stórsigur gegn vængbrotnu liði Körfubolti Fleiri fréttir Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ „Hefði séð eftir því alla ævi“ Magnús Már í viðræðum við HK Uppgjörið: Ísland - Norður-Írland 3-0 | Áfram hluti af elítunni Tölur úr Bestu 2025: Klúðraði langflestum dauðafærum í sumar FH bíður með að tilkynna nýjan þjálfara Óskar Hrafn fer ekki fet Birnir frá Akureyri í Garðabæ Hættir með Fram Sjá meira