Þurfum að fara sautján ár aftur í tímann til að finna svona byrjun á Íslandsmótinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. maí 2019 16:30 Halldór Orri Björnsson skorar hér jöfnunarmark FH-inga í gær. Vísir/Vilhelm
Það er þröngt á þingi á toppnum í Pepsi Max deild karla í fótbolta eftir fyrstu tvær umferðirnar en annarri umferðinni lauk í gær. Fimm lið eru með fjögur stig en ekkert lið er með fullt hús stiga. Öll lið nema ÍBV hafa fengið stig. FH varð síðasta sigurliðið frá því í fyrstu umferð til að tapa stigum en liðið gerði 1-1 jafntefli við Víkinga. Áður höfðu Breiðablik, Fylkir og ÍA öll gert jafntefli í annarri umferðinni en þau unnu leiki sína í fyrstu umferðinni eins og FH. Þetta þýðir að öll tólf lið Pepsi Max deildarinnar hafa tapað stigum í fyrstu tveimur umferðunum. Þetta hefur aldrei gerst áður í tólf liða deild (frá 2008) og það þarf að fara allt til ársins 2002 til að finna Íslandsmót þar sem ekkert lið er með 6 stig eða fullt hús stiga eftir tvær umferðir. Við erum því að tala um að það séu sautján ár síðan Íslandsmótið byrjaði svona jafnt síðast. Sumarið 2002 voru fjögur lið jöfn með fjögur stig eða Fylkir, KR, Þór Akureyri og Keflavík. KR varð Íslandsmeistari um haustið en Fylkir endaði í öðru sæti. Þór og Keflavík féllu hins vegar bæði. Nú eru fimm lið jöfn á toppnum með fjögur stig eða Fylkir, KR, ÍA, Breiðablik og FH. Tvö til viðbótar hafa heldur ekki tapað stigum en Stjarnan og Víkingur hafa gert jafntefli í báðum sínum leikjum. Hér fyrir neðan má sjá liðin sem hafa verið á toppnum eftir tvær umferðir á þessari öld.Toppliðið eftir tvær umferðir í tólf liða deild 2008-2109:2019 - Fylkir, KR, ÍA, Breiðablik og FH með 4 stig 2018 - Breiðablik með 6 stig 2017 - Valur með 6 stig 2016 - FH, Fjölnir, Stjarnan og Víkingur Ó. með 6 stig 2015 - FH og Stjarnan með 6 stig 2014 - Fjölnir, Keflavík og Stjarnan með 6 stig 2013 - FH, ÍBV, Valur og KR 2012 - Valur og ÍA með 6 stig 2011 - Valur með 6 stig 2010 - Fylkir og Keflavík með 6 stig 2009 - Stjarnan KR, Fylkir og Breiðablik með 6 stig 2008 - FH, Fram, Fjölnir og KeflavíkToppliðið eftir tvær umferðir frá 2000-2007: 2007 - FH með 6 stig 2006 - FH, Breiðablik og Fylkir með 6 stig 2005 - FH, Valur og KR með 6 stig 2004 - Keflavík með 6 stig 2003 - Valur og Fylkir með 6 stig2002 - Fylkir, KR, Þór og Keflavík með 4 stig 2001 - Keflavík, Valur og Breiðablik með 6 stig 2000 - Keflavík og ÍA með 6 stig
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Eigandi Nott.Forest ákærður fyrir tengsl við glæpagengi Sport Stelpurnar okkar fá ekki leiki vegna sparnaðar Fótbolti Donald Trump að fá friðarverðlaun frá FIFA? Fótbolti Endurkoma ársins: Á Norðurlandamót aðeins ellefu mánuðum eftir hálsbrot Sport Fylgist spenntur með Viktori: „Þetta er með ólíkindum“ Fótbolti Pálmi í ótímabundið leyfi Íslenski boltinn Erfitt að heyra hvað Orri hefur þjáðst Fótbolti „Rokk og ról“ hjá Frey í villta vestrinu Fótbolti Víðir vann „diplómatískan sigur“ á þýska handknattleikssambandinu Handbolti Lamine Yamal sakaði menn um lygar eftir leik Fótbolti Fleiri fréttir Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ „Hefði séð eftir því alla ævi“ Magnús Már í viðræðum við HK Uppgjörið: Ísland - Norður-Írland 3-0 | Áfram hluti af elítunni Tölur úr Bestu 2025: Klúðraði langflestum dauðafærum í sumar FH bíður með að tilkynna nýjan þjálfara Óskar Hrafn fer ekki fet Birnir frá Akureyri í Garðabæ Hættir með Fram Heimir kynntur til leiks í Árbænum Sjá meira