Fjórir ÍR-ingar eru þeir einu með meira 400 mínútur í þessari úrslitakeppni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. maí 2019 13:00 Matthías Orri Sigurðarson. Vísir/Daníel
ÍR-ingurinn Matthías Orri Sigurðarson hefur spilað flestar mínútur af öllum leikmönnum í úrslitakeppni Domino´s deildar karla í körfubolta en liðsfélagar hans skipa næstu sæti listans. ÍR-liðið er að fara spila sinn fimmtánda leik í þessari úrslitakeppni í oddaleiknum á móti KR í DHL-höllinni annað kvöld. Ekkert félag hefur spilað svo marga leiki í einni úrslitakeppni í allri sögu hennar frá 1984. Matthías Orri vantar aðeins 8 mínútur og 6 sekúndur upp á það að spila 500 mínútur í þessari úrslitakeppni. Hann og þrír aðrir leikmenn úr ÍR-liðinu eru þeir einu sem hafa spilað yfir 400 mínútur í úrslitakeppninni. Matthías Orri hefur þannig spilað 106 mínútum meira en Julian Boyd sem er mínútuhæstur í KR-liðinu með rúmlega 385 mínútur spilaðar. KR-ingurinnPavelErmolinskij kemst líka upp í níunda sæti listans þrátt fyrir að hafa aðeins spilað í samtals þrjár mínútur í síðustu tveimur leikjum. Það hafa samtals verið 575 mínútur í boði í ÍR-leikjunum í úrslitakeppninni og hefur Matthías því verið 85 prósent leiktímans inn á vellinum. Matthías Orri er með 15,1 stig og 3,3 stoðsendingar að meðaltali í úrslitakeppninni. Liðsfélagi hans KevinCapers er einnig inn á topp fjögur þrátt fyrir að hafa verið rekinn út úr húsi í einum leik og tekið út leikbann í öðrum. Gerald Robinson og Sigurður Gunnar Þorsteinsson skipa annað og þriðja sæti listans. Mínútuhæstir KR-inga eru auk Julian Boyd þeir Kristófer Acox og MikeDiNunno.Flestar spilaðar mínútur í úrslitakeppni Domino´s deildar karla 2019: 1. Matthías Orri Sigurðarson, ÍR 491 mínúta:54 sekúndur 2. Gerald Robinson, ÍR 473:22 3. Sigurður Gunnar Þorsteinsson, ÍR 465:28 4. KevinCapers, ÍR 439:08 5. Julian Boyd, KR 385:26 6. Kristófer Acox, KR 369:54 7. MikeDiNunno, KR 53:57 8. BrandonRozzell, Stjarnan 325:12 9. PavelErmolinskij, KR 319:55 10. NikolasTomsick, Þór Þ. 318:30 13. Jón Arnór Stefánsson, KR 303:11 14. Sigurkarl Róbert Jóhannesson, ÍR 302:18 20. Sæþór Elmar Kristjánsson, ÍR 229:1
Dominos-deild karla Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Enski boltinn Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira