Stjarnan vann 3-1 sigur á Fylki fjórðu umferð í Pepsi Max-deild kvenna er liðin mættust á Stjörnuvellinum í Garðabænum í kvöld.
Markalaust var í hálfleik en Renae Cuellar kom Stjarnan yfir. Diljá Ýr Zoomers tvöfaldaði svo forystuna á 73. mínútu og Stjörnustúlkur komnar í vænlega stöðu.
Jasmín Erla Ingadóttir kom Stjörnunni í 3-0 en Margrét Björg Ásvaldsdóttir minnkaði muninn í 3-1 áður en yfir lauk. Lokaktölur 3-1.
Stjarnan er með þrjá sigurleiki í fyrstu fjórum leikjunum og eru í þriðja sætinu en Fylkir er í fimmta sætinu með sex stig.
