Mohamed Salah og Divock Origi skoruðu mörk Liverpool í leiknum. Mark Salahs kom eftir eina mínútu og 48 sekúndur en Origi, sem kom inn á sem varamaður í seinni hálfleik, skoraði þremur mínútum fyrir leikslok.
Þetta er í sjötta sinn sem Liverpool vinnur Meistaradeildina/Evrópukeppni meistaraliða og fyrsta sinn síðan 2012 sem Rauði herinn vinnur stóran titil. Þetta er jafnframt fyrsti titilinn sem Liverpool vinnur undir stjórn Jürgens Klopp.
Aðeins 29 sekúndur voru liðnar af leiknum þegar Damir Skomina dæmdi vítaspyrnu eftir að Moussa Sissoko handlék boltann innan vítateigs.

Fátt annað markvert gerðist í fyrri hálfleik. Trent Alexander-Arnold átti skot framhjá og Andy Robertson skot sem Hugo Lloris varði í horn.
Tottenham var miklu meira með boltann en átti ekki skot á markið í fyrri hálfleik.

Varamaðurinn James Milner komst nálægt því að skora fyrir Liverpool um miðbik seinni hálfleiks en skot hans fór rétt framhjá.
Á 80. mínútu varði Alisson tvö skot í röð, frá Son Heung-min og Lucas Moura. Brassinn varði svo aukaspyrnu Christians Eriksen skömmu síðar.
Þegar þrjár mínútur voru til leiksloka gulltryggði Origi sigur Liverpool þegar hann skoraði með góðu vinstri fótar skoti í fjærhornið. Belginn hefur reynst betri en enginn í vetur og skoraði m.a. tvö mörk í seinni undanúrslitaleiknum gegn Barcelona.
Fleiri urðu mörkin ekki og Liverpool fagnaði sigri og Evrópumeistaratitli.