Lenda þurfti flugvél frá Ethopian Airlines á Keflavíkurflugvelli í fyrradag vegna veikinda farþega um borð. Vélin var á leið frá Dubai til Baltimore. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurnesjum.
Um var að ræða kornabarn sem veiktist og var það flutt með sjúkrabifreið á Barnaspítala Hringsins. Ekki liggja fyrir upplýsingar um líðan þess.
Lentu með veikt kornabarn í Keflavík
Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
