Íþróttatoppar eiga ekki að vera kynferðislegir 13. júní 2019 16:45 Íþróttatoppar eru ómissandi á æfingum og í keppnum. Nordicphotos/GETTY
Þetta kemur fram í grein á vef The Guardian. Á áttunda áratug síðustu aldar var skokk nýkomið í tísku. Ung kona sem starfaði við háskólann í Vermont, Lisa Lindahl, hafði nýtekið upp á því að fara út að hlaupa daglega, sem hún na Fyrsta auglýsingin fyrir vöruna var mynd af Lindahl og Palmer-Smith í íþróttatoppunum, með heimilisfangi og símanúmeri Lindahl fyrir pantanir. Í dag er virði íþróttatoppamarkaðarins talið vera um 770 milljarðar íslenskra króna árlega. Á þeim markaði má þó líka finna toppa sem sýna að kvennaíþróttum er tekið af lítilli alvöru. Mjúkir magabolir með engum stuðningi fyrir brjóstin fyrir utan sentimetra af teygjanlegu efni utan um brjóstkassann uppfylla ekki þann tilgang að minnka hreyfingu á brjóstum, heldur eitthvað allt annað. Þó að sumir íþróttatoppar líti íþróttalega út þá þýðir það ekki að þeir henti íþróttaiðkendum.Var í tveimur íþróttatoppum Í ár eru hins vegar íþróttatoppar loksins hluti af opinberum búnaði keppenda í heimsmeistaramóti kvenna í fótbolta. Nike framleiðir íþróttatoppa fyrir 14 lið keppninnar. Áhersla er lögð á að íþróttatopparnir séu nauðsynlegur hluti af búnaði íþróttakvenna til að geta skarað fram úr. Talskona hönnunardeildar Nike, Heaher Amuney-Day, segir að útlit innblásið af fótbolta sé „sterkt og frjálst, það stendur fyrir sjálfstraust og stolt“. Hún spáir því að íþróttakonur í dag muni hafa hvetjandi áhrif á stelpur úti um allan heim eins og hafi gerst árið 1999 þegar kvennalið Bandaríkjanna í fótbolta fór með sigur af hólmi á heimsmeistaramóti og orsakaði sprengju í þátttöku stelpna í íþróttum árin á eftir. Eartha Pond byrjaði að spila fótbolta þegar hún var níu ára. Nokkrum árum seinna fór líkaminn að þroskast hratt og áður en hún vissi af var íþróttatoppur orðinn nauðsynlegur á æfingum. „Stundum var ég í tveimur íþróttatoppum, með púðum og böndum til að geta liðið þægilega. Ef ég gleymdi toppnum þá var ekki séns á að ég gæti tekið þátt.“ Pond spilaði fyrir bæði Chelsea og Arsenal áður en hún gerðist íþróttakennari, og þá fyrst fór hún að taka eftir dræmri þátttöku stelpna í íþróttatímum. „Ég reyndi að finna hverjar hindranirnar voru og þá komu íþróttatopparnir upp aftur og aftur.“ Ein stelpa sagði henni að mamma hennar hefði ekki efni á íþróttatoppi. Aðrar sögðu að íþróttatoppar væru ekki á lista yfir fatnað sem tilheyrði skólabúningnum og því erfitt fyrir þær að biðja um slíkan.Fitness-þjálfarinn Kira Stokes er hér í svörtum íþróttatoppi.Brjóst eiga skilið virðingu Í dag hvetur Pond íþróttamerki til að niðurgreiða íþróttatoppa fyrir unglingsstelpur sem þurfa á þeim að halda og berst fyrir því að íþróttatoppar séu á lista yfir nauðsynlegan búnað í námi. Ef fólki er alvara með þá kröfu að allir nemendur taki þátt í íþróttum, þá verði að koma til móts við stelpur með þessum hætti. Á meðan fjárfesting í framþróun íþróttatoppsins hefur augljóslega mikið með nauðsynleg þægindi fyrir íþróttakonur að gera, þá er auk þess verið að senda þau skilaboð að brjóst eigi líka skilið virðingu með ókynferðislegum og óhlutgerandi hætti. Reebok notaði tækni innblásna af NASA til að búa til PureMove íþróttatoppinn og Nike í samstarfi við háskólann í Loughborough gerði lífefnafræðilegar athuganir á kvenlíkömum á hreyfingu. Aðgerðir íþróttamerkja á borð við fyrrnefnda viðleitni Reebok og Nike til að þróa íþróttabúnað fyrir konur, senda ákveðin skilaboð um breytt viðhorf til kvenlíkamans. Árið 2013 lét þáverandi framkvæmdastjóri undirfatamerkisins Victoria’s Secret þau orð falla að engum líki það þegar íþróttatoppar láti konur líta út fyrir að vera alveg flatbrjósta. Pond segir hins vegar að „íþróttatoppar hafi það hlutverk að minnka hreyfingu á brjóstum. Fyrir íþróttamönnum er þetta í sama flokki og legghlífar og mér finnst að það ætti ekki að reyna að gera það kynferðislegt.“
Birtist í Fréttablaðinu Íþróttir Mest lesið Hefur aldrei séð svona ofbeldi: „Þetta var allt of mikið“ Sport Sú besta í heimi komst ekki á blað hjá íslenska landsliðsþjálfaranum Fótbolti Dauðaslys í maraþonhlaupi Sport Brenndi á sér höndina áður en hann kýldi í borðið Sport Átta þúsund krónur fyrir miða á úrslitaleik HM í stað 529 þúsund Fótbolti Öðruvísi lið en áður hafa sóst í Frey: „Vita hvar ég stend“ Fótbolti Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Körfubolti Eygló íþróttastjarna ársins í Reykjavík Sport Man United ósátt við Marokkó og FIFA Enski boltinn Enginn blóðugur en einn brjálaður á HM í kvöld Sport Fleiri fréttir Spilar áfram með Messi í Miami Snýr aftur á æfingar eftir 100 daga í burtu Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Ungstirnið skallaði meistarana áfram Vålerenga úr leik eftir tap fyrir stöllum Glódísar „Ef við hefðum ekki verið að setja þessi skot þá hefðum við skíttapað“ Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram KR á toppinn Uppgjörið: Grindavík - Haukar 92-93 | Fullkomin jólagjöf Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Geggjaðar Eyjakonur á toppinn Spilaði 13 mínútur en var stigahæstur Varði fjögur víti til að tryggja PSG titilinn Guðrún Brá efst eftir fyrsta hring í Marokkó Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur Eygló íþróttastjarna ársins í Reykjavík Fjórir frá hjá Blikum á morgun Rýndu í gamlar myndir: „Svakalega ertu kringlóttur í framan“ Spáir því að Joshua vinni með hrikalegu rothöggi Benítez lét Sverri byrja og flaug áfram í bikarnum KSÍ missti af meira en milljarði króna City sagt ætla að keppa við Liverpool og United um Semenyo Guðbjörg fyrsta konan í fjögur hundruð leikina Þorsteinn Leó að ná sér „langt á undan áætlun“ Telur samstarf Hamilton og Ferrari nálgast þolmörk Stjarnan og Grindavík mætast í bikarnum Kona vann Ísmaraþonið á Suðurskautslandinu í fyrsta sinn Nígeríumenn halda HM-draumnum á lífi með kvörtun til FIFA Birtu tölvupóst þar sem efast er um heilsu forseta IHF Valdi ekki eigin leikmann í landsliðið Sjá meira