„Ég er viss um að þið vilduð öll að ég væri með karlmanns geirvörtur núna,“ skrifaði Bryndís við mynd sem hún birti á Instagram á dögunum.
Bryndís segir í samtali við Vísi að það sé fáránlegt hvernig stjórnendur samfélagsmiðla meini konum að birta myndir af sér berum að ofan á meðan karlar geri það án nokkurra athugasemda. Hún segir viðbrögðin hafa verði mikil við myndbirtingunni um daginn. Meiri en hún bjóst við.
„Já, auðvitað á þetta að vera normal jafnt hjá körlum og konum. Það eru oft fáránlegri hlutir leyfðir á þessum miðlum,“ segir Bryndís. Henni finnist þetta asnalegt en virðir að sjálfsögðu skoðanir annarra.
„Ég birti þessa mynd því ég vissi að hún myndi verða umdeild, fólk myndi tala og sumt fólk jafnvel dæma. En mér er svo nákvæmlega sama hvað fólki finnst,“ segir Bryndís og hlær.
„Það á að leyfa fólki að vera eins og það er. Að hamla öðru kyninu að sína nipplur er alveg kjánalegt.“
Viðbrögðin hafi upp til hópa verið góð, bæði frá strákum og stelpum.
Attention seeking hoeView this post on Instagram
A post shared by Bryndís Líf (@brynnale) on Jun 10, 2019 at 12:55pm PDT