Spilaði með Blikum á KR-vellinum á dögunum en er núna kominn í Fram Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. júlí 2019 14:30 Hlynur Örn Hlöðversson í leik með Blikum á móti KR á KR-vellinum fyrir tíu dögum. Vísir/Bára
Hlynur Örn Hlöðversson, varamarkvörður Gunnleifs Gunnleifssonar hjá Breiðabliki, er farinn frá Kópavogsfélaginu. Stuðningsmannavefur Blika segir að Hlynur Örn Hlöðversson hafi gengið til liðs við Fram í Inkasso-deildinni. Hlynur þekkir til hjá félaginu en hann lék með Safamýrarliðinu sumarið 2017. Hlynur Örn spilaði í 78 mínútur á móti KR í toppslag Pepsi Max deildar karla á dögunum en hann kom þá inn fyrir Gunnleif Gunnleifsson sem meiddist í byrjun leiks. Hlynur kom inn á í stöðunni 1-0 og fékk eitt mark á sig í seinni hálfleiknum.Hlynur Örn til Fram | Fréttir | https://t.co/lZK1ylRO5rhttps://t.co/Pe3LVvqjKu — Blikar.is (@blikar_is) July 11, 2019 Gunnleifur var síðan búinn að ná sér af meiðslunum í næsta leik sem var á móti HK. Hlynur var þá ekki í hópnum en í stað hans var kominn Ólafur Íshólm Ólafsson. Blikar höfðu nefnilega áður kallað markvörðinn Ólaf Íshólm heim úr láni frá Inkassodeildarliði Fram. Þar opnaðist markmannsstaða fyrir Hlyn Örn. Hlynur Örn er 23 ára gamall og á að baki 8 leiki með Breiðabliki og samtals 65 leiki með Njarðvík, Fjölni, Grindavík, Tindastól, KF og Augnabliki. Hlynur hefur verið í herbúðum Blika frá árinu 2012. Ólafur Íshólm hafði spilað alla leiki Framliðsins í Inkasso deildinni og staðið sig með miklum ágætum. Hann er 24 ára gamall og á að baki 5 leiki með Blikaliðinu. Ólafur kom til Blika frá Fylki árið 2017 þar sem hann lék 34 leiki með meistaraflokki.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Fleiri fréttir Fram án þriggja gegn KR Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Uppgjörið, viðtöl og myndir: Breiðablik - ÍA 2-0 | Afbragðsafgreiðsla Ísaks innsiglaði sigurinn „Algjör synd að við fengum ekkert út úr þessum leik“ Uppgjörið: Valur - Stjarnan 2-2 | Gylfi Þór jafnaði með stórkostlegu marki Hafa ekki heyrt frá Hearts: „Kom mér jafn mikið á óvart og þér“ Sjáðu ótrúlega sjö mínútna þrennu Smith og tvennu Nadíu Arnar sagður líklegur til að taka við í Skotlandi „Við Mosfellingar erum öðruvísi, við erum sérstakir“ Fyrirliðinn framlengir og tekur slaginn í Bestu deildinni Uppgjörið: Fjölnir - Afturelding 0-0 | Afturelding fer aftur á Laugardalsvöll Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Uppgjörið og viðtöl: Fram - Fylkir 2-0 | Langþráður sigur Fram setur níu tær í efstu deild að ári Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Leik lokið: Breiðablik - Þór/KA 6-1 | Blikar skoruðu sex og eru áfram á toppnum Tveir varnarmenn KR meiddust á æfingu á Starhaga „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ „Það hlaut að koma að því“ Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Selfoss og KFA mætast í úrslitum „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Uppgjörið og viðtöl: Víkingur - Þróttur 1-1 | Eitt stig á hvort lið í fremur rólegum leik „Ætlum að taka bikarinn norður, það er bara staðan“ „Held að þetta verði mjög erfiður leikur“ Seinna spjaldið var ekki viljandi: „Er bara pirraður og missi hausinn“ Sjá meira