Fáum að kynnast Sigga Sól sem er Einhleypa Makamála þessa vikuna.
1. Nafn?
Sigurður Sólmundarson.
2. Gælunafn eða hliðarsjálf?
Mörg. Til dæmis Buddan, Costco gaurinn, gamli og typpi frændi svo eitthvað sé nefnt.
3. Aldur í árum?
42 ára.
4. Aldur í anda?
16 ára.
5. Menntun?
Sæmilegt grunnskólapróf frá Foldaskóla, 100 einingar í FSU og nokkur stig í knattspyrnuþjálfun. Sem sagt nánast engin menntun.
Seigur er hann sá stutti.
7. Guilty pleasure kvikmynd?
Clueless.
8. Varstu skotinn í einhverjum frægum þegar þú varst yngri?
Alicia Silverstone, Salma Hayek og Lucy í Dallas.
9. Syngur þú í sturtu?
Alltaf.
10. Talar þú stundum um þig í þriðju persónu?
Já vandræðalega oft.
Google maps. Ef ekki væri fyrir það myndi ég ekki rata útúr götunni minni.
12. Ertu á Tinder?
Já.
13. Hvernig myndir þú lýsa þér í þremur orðum?
Kærulaus, klæminn, krútt.
14. Hvernig myndu vinir þínir lýsa þér í þremur orðum?
Kærulaus, klæminn, krútt.
15. Hvaða persónueiginleikar finnast þér heillandi?
Gleði og gæska.
Hroki og húmorsleysi.
17. Hvaða dýr værir þú ef þú værir dýr?
Sennilega hagamús. Lítil og seig og mikið á ferðinni.
En ég þoli samt ekki mýs og önnur nagdýr.
18. Ef þú mættir velja einhverja þrjá einstaklinga úr sögunni (lífs eða liðna) til að bjóða í kvöldmat og spjall, hverja myndir þú velja?
Ég myndi velja Winston Churchill, Robert Downey jr. og Vigdísi Finnbogadóttur. Yrði gáfulegt spjall með dass af góðum djammsögum.
19. Býrðu yfir einhverjum leyndum hæfileikum?
Já, en ef ég myndi svara því hér þá væri þetta ekki lengur leyndur hæfileiki.
20. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera?
Mér þykir alltaf skemmtilegast að vera með börnunum mínum sem eru besta og skemmtilegasta fólk sem ég þekki. Glens og grín í góðra vina hóp kemur þar á eftir.
Fúga flísar og keyra bíl. Bæði hlutir sem ég geri oft en hef leiðir til að gera þetta bærilegt. Ef maður gerir aldrei neitt leiðinlegt þá veit maður ekki hvað manni finnst skemmtilegt.
22. Ertu A eða B týpa?
Klárlega A týpa.
23. Hvernig viltu hafa eggin þín?
Klárlega ekki öll í sömu körfunni.
24. Hvernig viltu kaffið þitt?
Rótsterkt með mjólk, þá sjaldan ég drekk kaffi.
25. Á hvaða skemmtistaði ferðu þegar þú ferð út að skemmta þér?
Ég fer bara þangað sem er vínveitingaleyfi.
Ég er friðelskandi maður en ég get ekki borið ábyrgð á gjörðum mínum ef einhverjum dytti í hug að kalla mig þessu ónefni. Segir maðurinn sem er kallaður Buddan og Typpi frændi.
27. Drauma stefnumótið?
Í VIP lounge á Anfield í Liverpool með sálufélaga mínum sem elskar Liverpool jafn mikið og ég. Þetta er draumastefnumótið en raunhæft væri sennilega á KFC á Selfossi.
28. Einhver söngtexti sem þú hefur sungið vitlaust?
Já oft og verð alltaf jafn miður mín þegar ég kemst að því. Nýjasta dæmið er lagið með Bubba og Katrínu Halldóru. Ég syng alltaf hvernig eins og fífl, en auðvitað á það að vera hverning eins og Bubbi syngur það.
29. Hvað horfðir þú á síðast á Netflix?
Maniac.
30. Hvað er ást?
Ást er að vera með manneskju að gera hluti sem allajafna eru leiðinlegir og hugsa, ég myndi hvergi annarsstaðar vilja vera.

Ég vil alls ekki uppljóstra því hér og nú, svona ef ske kynni að einhver myndi lesa þetta!

