Veðbankar heimsins hafa líka mikla trú á íslensku stelpunum í ár þótt þeir telji að sigurganga tveggja magnaðra íþróttamanna haldi áfram.
Bandaríkjamaðurinn Mat Fraser hefur unnið þrjú ár í röð hjá körlunum og hin ástralska Tia-Clair Toomey getur unnið þriðja árið í röð hjá konunum. Þeim er spáð sigri hjá veðbönkunum.
Tia-Clair Toomey ætti hins vegar að fá mestu keppnina frá íslenskum CrossFit-drottningunum því okkar konur eiga næstu þrjú sæti hjá veðbönkunum.
Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir er líklegust til afreka af íslensku konunum en hún er í öðru sæti hjá spámönnunum. Sara hefur átt magnað ár í ár og mætir líka mjög hungruð til leiks enda sú eina af þessum þremur íslensku CrossFit-drottningunum sem hefur ekki unnið heimsleikana. Það hefur bara örlítið vantað upp á hjá Söru síðustu ár en margir binda vonir til þess að nú hafi hún lukkuna með sér í liði.
Katrín Tanja Davíðsdóttir er spáð þriðja sætinu eða sama sæti og hún tók í fyrra. Katrín Tanja hefur unnið heimsleikana tvisvar sinnum eða 2015 og 2016 og hefur verið að gera frábæri hluti sem stórstjarna í CrossFit sportinu. Katrín Tanja tryggði sig snemma inn á leikana og fékk því nægan tíma til að stilla sig inn á ágúst 2019.
Goðsögninni Anníe Mist Þórisdóttur er einnig spáð velgengni á tíundu heimsleikunum sínum en veðbankar spá henni fjórða sætinu. Anníe Mist kom CrossFit á kortið á Íslandi þegar hún varð fyrsta konan í sögunni til að vinna heimsleikana tvisvar sinnum en hún hefur alls fimm sinnum komist á verðlaunapall sem er met.
Hjá körlunum Björgvini Karli Guðmundssyni er líka spáð góðu gengi og er oftast meðal efstu fjögurra efstu þegar veðbankar eru að spá. Þeir sem eru settir á undan honum eru fyrrnefndur Mat Fraser og svo Kanadamennirnir Patrick Vellner og Brent Fikowski. Björgvin Karl er eini Íslendingurinn sem keppir í karlaflokki á heimsleikunum í ár.
Vísir og Stöð 2 Sport 3 verða með beina útsendingu frá heimsleikunum í ár og hér á Vísi munum við líka bjóða upp á beina textalýsingu frá keppninni. Heimsleikarnir hefjast í dag 1. ágúst en lýkur á sunnnudaginn kemur. Útsendingin frá þessum fyrsta degi hefst klukkan 14.00 að íslenskum tíma en textalýsingin byrjar aðeins fyrr.
Iceland Strong! #ready #strong #proud #dottirView this post on Instagram
A post shared by Annie Thorisdottir (@anniethorisdottir) on Jul 30, 2019 at 6:04pm PDT