Allur tíminn í fjölskylduna Davíð Stefánsson skrifar 15. ágúst 2019 07:00 Dýrleif Lára, hundurinn Loki, Gunnar Tryggvason, Vésteinn, Leifur Steinn og Daníel Ernir. FBL/Sigtryggur Ari
Gunnar Tryggvason verkfræðingur sem er fimmtugur í dag er fæddur 15. ágúst 1969 á Ísafirði. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Ísafirði árið 1989. Hann tók síðan B.Sc.-gráðu í rafmagnsverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1993; M.Sc.-gráðu í raforkuverkfræði frá Háskólanum í Karlsruhe í Þýskalandi árið 1995 og diplómagráðu í viðskipta- og rekstrarfræði frá Endurmenntun HÍ árið 2001. Gunnar hefur víðtæka þekkingu og reynslu á rekstri, stjórnun, fjármálum og verkfræði. Tilkynnt var nýlega um að hann hefði verið ráðinn aðstoðarhafnarstjóri Faxaflóahafna. Þar segir hann spennandi verkefni fram undan. „Ég hef lengi fengist við greiningu á arðsemi innviða. Fyrir um ári vann ég í samstarfi við KPMG að úttekt á þróun starfsumhverfis Faxaflóahafna og þeirri umbreytingu sem fram undan er, meðal annars við orkuskipti. Ég fékk þá enn meiri áhuga á starfseminni,“ segir hann. Frá 2008 starfaði Gunnar sem ráðgjafi hjá KPMG á sviði orku- og iðnaðarmála. Þá var hann aðstoðarmaður Oddnýjar Harðardóttur og Katrínar Júlíusdóttur þegar þær gegndu stöðu fjármálaráðherra. Þar áður starfaði hann meðal annars hjá fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans og vann í sjö ár sem verkfræðingur í áliðnaði. Nú er Gunnar að ljúka störfum fyrir ferðaþjónustufyrirtækið Allrahanda Gray Line.Átta í fjölskyldu Gunnar er giftur Úlfhildi Leifsdóttur tannlækni. „Við kynntumst árið 2001. Hún heillaði mig á kajakmóti í Stykkishólmi. Það hefur hún gert síðan,“ segir hann hlæjandi. Hann er upptekinn fjölskyldumaður enda sex börn í fjölskyldunni á aldrinum 9-30 ára. „Allur minn tími eftir vinnu fer í fjölskylduna,“ segir Gunnar þakklátur en hann á tvö börn af fyrra hjónabandi, þau Tryggva Örn verkfræðing, fæddan 1989, og Magneu, verkfræðinema, fædda 1994. Þau Úlfhildur eiga saman fjögur börn, Leif Stein, fæddan 2004, Dýrleifu Láru, fædda 2006, Véstein, fæddan 2009, og Daníel Erni, fæddan 2010. Þá er bara eftir að nefna hundinn Loka og köttinn Uglu! Áhugamálin skíði og útivist Aðspurður um áhugamálin segir Gunnar skíði og aðra útivist koma fyrst upp í hugann. „Mér tókst að neyða krakkana til að taka þátt í því sem mér þykir skemmtilegt, á borð við útivist og skíði enda Ísfirðingur að uppruna. Öll fjölskyldan hoppaði á þann vagn með mér. Annars erum við mikið útivistarfólk og veiðum gjarnan á sumrin,“ segir hann. Þeir sem þekkja Gunnar vita af stjórnmálaáhuga hans. „Ég var virkur í pólitíkinni vinstra megin við miðju fram eftir aldri,“ segir hann og bætir því við að hann hafi verið virkur í Æskulýðsfylkingunni og setið í Stúdentaráði í Háskólanum fyrir Röskvu. „Þegar ég var kominn út í nám erlendis trosnuðu þessi tengsl uns Oddný Harðardóttir hringdi árið 2012 og óskaði eftir því að ég gerðist aðstoðarmaður hennar í fjármálaráðuneytinu. Eftir það hefur ekki mikið farið fyrir pólitíkinni þótt áhuginn sé fyrir hendi. Í dag er ég yfirlýstur jafnaðarmaður og sit meðal annars fyrir hönd Samfylkingarinnar í stjórn Landsvirkjunar,“ segir Gunnar. Napóleon 250 áraEn hvað ætlar Gunnar að gera í tilefni af afmælinu? „Við Napóleon Bónaparte eigum sama afmælisdag. Það eru 200 ár upp á dag á milli okkar. Ég ætla að halda upp á afmæli Napóleons í vinnunni á morgun en mitt um helgina,“ segir hann hlæjandi en segist ætla að halda upp á fimmtugsafmælið með bræðrum sínum og foreldrum um helgina. „Við ætlum bara að hafa það notalegt saman“.En hvernig er að verða fimmtugur? „Ég er fyrst og fremst fullur tilhlökkunar. Ég er búinn að vera að eiga börn og ala þau upp í þrjátíu ár. Fram undan er frelsi frá amstri barnauppeldisins. Nú eru börnin orðin félagar manns. Ef ég ætti að gefa ungu fólki einhver ráð þá er það að vera óhrædd að stökkva á tækifærin þegar þau þjóta fram hjá. Óttinn við að gera mistök getur orðið stærstu mistökin,“ segir afmælisbarnið.
Birtist í Fréttablaðinu Ísafjarðarbær Tímamót Mest lesið Lifir eins og kóngur á 150-200 þúsund krónum á mánuði Lífið Greindist með skyrbjúg eftir notkun megrunarlyfs Lífið Herra Hnetusmjör og Sara selja lúxusíbúð innan við ári eftir kaupin Lífið Þakkar aðal sykurpabbanum fyrir allt Lífið Gellurnar fjölmenntu á gugguvaktina Lífið Guðni Th. orðinn afi Lífið Fólk geti gengið frá kaupsamningum sjálft Lífið „Prinsessur eru líka sterkar og fyndnar“ Lífið Madonna og Elton John grafa stríðsöxina Lífið Slæm hárgreiðsla Steinda varð enn verri Lífið Fleiri fréttir Líkaminn þarf ekki að vera fullfrískur til að upplifa unað Guðni Th. orðinn afi Fólk geti gengið frá kaupsamningum sjálft Lifir eins og kóngur á 150-200 þúsund krónum á mánuði Þakkar aðal sykurpabbanum fyrir allt Gellurnar fjölmenntu á gugguvaktina Greindist með skyrbjúg eftir notkun megrunarlyfs Slæm hárgreiðsla Steinda varð enn verri Herra Hnetusmjör og Sara selja lúxusíbúð innan við ári eftir kaupin „Prinsessur eru líka sterkar og fyndnar“ Madonna og Elton John grafa stríðsöxina 80 syngjandi karlar syngja hér heima og í Gimli í Kanada „Fólkið hefur gleymst og þetta er ekki manneskjulegt“ Kveðju kastað á Megas í tilefni dagsins Bleik og ævintýraleg miðbæjarperla Með skottið fullt af próteini Trommari Blondie er fallinn frá Stjörnulífið: Skvísuafmæli, Hönnunarmars og hækkandi sól Tónhylur sameinar reynslubolta og þá efnilegustu Geðbrigði er sigurvegari Músiktilrauna Fjölskylda Bryndísar Klöru þakklát Seldu draumahúsið og skella sér í Asíuævintýri með krakkana Laufey sendir lekamönnum tóninn Mikilvægt að á Íslandi sé framleitt úr íslenskri ull „Þessi krakki mun aldrei hlaupa á eftir bolta“ Sjóræningjar réðust á Íslendinga Krakkatían: Blæja, birnir og sveppahús „Ef þú ræðst svona aftur á mig þá stíg ég á fótinn þinn“ Átta ára sæmd heiðursmerki fyrir að bjarga lífi móður sinnar Tæknidagur fjölskyldunnar er í Neskaupstað í dag Sjá meira