Færsla sem Eva birti í gærkvöldi hefur vakið mikla athygli en þar ræðir hún ákvörðun sína um að lifa lífi án áfengis. Eva, sem hefur aldrei drukkið áfengi, segir ekkert sterkara en sódavatn hafa farið inn fyrir sínar varir og vill að fólk sé meðvitaðra um að það sé ekkert að því að lifa lífi án áfengis, og í raun og veru sé það „töff“ að drekka ekki eins og hún lýsir því sjálf.
Ómeðvituð ákvörðun
„Þetta bara gerðist, bara óvart. Ég var alltaf mikið í íþróttum og svo var þetta líka þegar allir voru að byrja að smakka og byrja að fikta við að drekka þá var ég alltaf smá skræfa, ég þorði aldrei að drekka. Svo fannst mér svo geggjað þegar ég fékk bílpróf að þá vildi mamma alltaf lána mér bílinn og mér fannst það svo geggjað, að fá traustið frá mömmu og pabba að fá bílinn lánaðan. Svo skemmti ég mér bara svo ótrúlega vel að það gerðist aldrei, ég tók aldrei sopann,“ segir Eva í samtali við Vísi.Hún segir það hafa verið bara þægilegt að drekka ekki, hún hafi alltaf haft fulla stjórn á aðstæðum og það sé eitthvað sem henti henni vel.
Það hefur aldrei háð Evu kjósa edrúmennsku fram yfir ölið, hún hafi alla tíð verið virk í öllu félagslífi í grunnskóla og menntaskóla og skemmt sér vel í öllu sem hún gerði. Hún hafi því ekki farið á mis við skemmtanir og næturlífið heldur hafi hún þvert á móti verið dugleg að skemmta sér með vinkonum sínum um helgar.
„Það er ekkert betra en að keyra heim, með kollinn í lagi, eftir geggjað djamm. Þið verðið líka með bestu sögurnar daginn eftir.“
Eva segir það vera mikilvægt að koma þessum skilaboðum á framfæri, sérstaklega til yngri fylgjenda sem eru margir hverjir að byrja í menntaskóla og finna því fyrir aukinni pressu varðandi skemmtanahald með tilheyrandi áfengisneyslu. Hún hvetur því ungu kynslóðina til þess að íhuga þann valkost að skemmta sér án áfengis og biðlar til þeirra sem kjósa að neyta áfengis að virða ákvörðun annarra um að gera það ekki.
„Þið sem að eruð byrjuð að drekka og eigið vininn sem vill ekki taka sopann, eða þorir því ekki eða langar ekki, verið vinurinn sem styður þetta og ber virðingu fyrir þessari ákvörðun. Ég hef alveg lent í því að fólk var að spyrja hvort ég ætlaði ekki að drekka en þá var ég svo heppin að eiga vinkonur sem sögðu bara að ég drykki ekki. Hvort það hafi verið því ég var alltaf á bíl og þeim fannst það þægilegt veit ég ekki,“ segir Eva og hlær.
„Það skipti mig aldrei neinu máli hvað fólki fannst um mig, hvort fólki fannst það flott að ég væri ekki að drekka eða hvort þeim fannst það ekki flott. Það eru samt fullt af ungum krökkum í dag sem eru hræddir við að hinir hafi skoðun á því sem þau eru að gera. Þetta er náttúrulega bara brjáluð pressa þegar maður er á þessum unglingsaldri þegar allt er að gerast.“
Skálar í sódavatni í Miss Universe Iceland
Undanfarin ár hefur Eva verið kynnir í Miss Universe Iceland keppninni og hlotið lof fyrir frammistöðu sína í því hlutverki. Það verður engin breyting þar á í ár, en Eva mun sjá um að kynna keppnina fyrir áhorfendum þegar hún verður haldin þann 31. ágúst í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ, edrú og hress að vana.
„Þetta eru rosalega flottar stelpur og það er ekkert verið að einblína á útlitið, útlitið er ekkert allt og þetta er svo miklu meira en það. Fólk á það til að horfa bara á „coverið“ en ekki það sem er undir og auðvitað hefur fólk sínar skoðanir á svona keppnum, en þetta er svo miklu meira en að vera sætur og flottur,“ segir Eva en hún lofar góðum bröndurum á sviðinu.
Miss Universe Iceland keppnin verður sýnd í beinni útsendingu hér á Vísi þann 31. ágúst.