Seltirningar gerðu út um leikinn strax á fyrstu tíu mínútunum. Sölvi Björnsson skoraði á sjöundu mínútu og tveimur mínútum síðar skoraði Halldór Kristján Baldursson annað mark.
Magni er í 11. sætinu með 16 stig, jafn mörg stig og Haukar, sem eru í sætinu ofar en Haukarnir eru með mun betri markahlutfall.
Eftir sigurinn er Grótta í 2. sætinu en þeir eru nú fjórum stigum á undan Þór sem tapaði 1-0 fyrir Keflavík á útivelli.
Fyrsta mark leiksins suður með sjó skroaði Adolf Mtasingwa úr vítaspyrnu. Í uppbótartíma skoraði svo Davíð Snær Jóhanesson og lokatölur 2-0. Slæmt tap Þórs í baráttunni um sæti í efstu deild.
Keflavík er í 5. sætinu með 31 stig en þrjár umferðir eru eftir af Inkasso deildinni.