Dómarabréf til stuðnings Huffman varpa nýju ljósi á illdeilur Aðþrengdu eiginkvennanna Kristín Ólafsdóttir skrifar 8. september 2019 11:36 Felicity Huffman, Eva Longoria og Teri Hatcher árið 2010. Sýningum á þáttunum lauk árið 2012 en þeir nutu gríðarlegra vinsælda vestanhafs, sem og hér á landi. Vísir/Getty
Bandaríska leikkonan Eva Longoria, sem þekktust er fyrir leik sinn í sjónvarpsþáttunum Aðþrengdum eiginkonum (e. Desperate Housewives), segir Felicity Huffman, meðleikkonu sína í þáttunum, hafa tekið upp hanskann fyrir sig á tökustað þáttanna, þar sem eineltisseggur úr leikaraliðinu hafi ráðið ríkjum. Þetta kom fram í bréfi sem Longoria sendi dómara til stuðnings Huffman í máli sem hverfist um svokallaða „háskólasvikamyllu“. Huffman játaði sig seka í maí síðastliðnum fyrir að hafa greitt fimmtán þúsund Bandaríkjadali til að láta leiðrétta á laun svör dóttur sinnar á inntökuprófi í virtan bandarískan háskóla. Gert er ráð fyrir að refsing Huffman verði ákveðin fangelsisvist í einn mánuð og að dómur verði kveðinn upp á föstudag.Sjá einnig: Dr. Dre dregur færslu um dóttur sína til baka eftir að upp komst um milljarðastyrki Longoria lýsir Huffman sem góðri vinkonu sinni í bréfinu til dómarans og segir þá fyrrnefndu hafa tekið sér opnum örmum strax á fyrsta degi á tökustað Aðþrengdra eiginkvenna árið 2004. Þá lýsir Longoria því í bréfinu að samstarfsmaður hennar í þáttunum hafi lagt sig í einelti. Longoria nafngreinir ekki eineltissegginn en fjölmiðlar vestanhafs hafa sett málið í samhengi við þráláta orðróma um illindi milli aðalleikkonu þáttanna, Teri Hatcher, og annarra í leikaraliðinu. Longoria segir að hún hafi liðið „vítiskvalir“ í hvert sinn sem hún neyddist til að vinna með umræddum samstarfsfélaga. Eineltið hafi viðgengist þangað til að Huffman sveif á viðkomandi og krafðist þess að látið yrði af hegðuninni. Þá þakkaði Longoria Huffman fyrir að hafa lagt til að Aðþrengdu eiginkonurnar tækju sig saman sem hópur í kjaraviðræðum við framleiðendur. Fram að því hafði Longoria fengið lægri laun en meðleikkonur sínar.Lori Loughlin og eiginmaður hennar Mossimo Giannulli eru einnig ákærð í háskólasvikamyllumálinu.AP/Steven SenneHélt áfram að heilsa vandræðagemsanum hlýlega Marc Cherry, höfundur Aðþrengdra eiginkvenna, er einnig skrifaður fyrir stuðningsbréfi til höfuðs Huffman. Í bréfi sínu lýsir hann sambærilegum vandræðum á tökustað vegna hegðunar tiltekinnar leikkonu. „Hún var stórstjarna sem glímdi við alvarleg hegðunarvandamál,“ skrifar Cherry. Við tökur á sjöundu þáttaröðinni hafi umrædd leikkona neitað alfarið að eiga í samskiptum við meðleikara sína nema í gegnum framleiðendur þáttanna. Huffman hafi haldið áfram að vera kurteisin uppmáluð í samskiptum við konuna og heilsað henni hlýlega á hverjum morgni, þrátt fyrir að eiga ekki von á svari. Að minnsta kosti fimmtíu manns hafa verið ákærðir í tengslum við sviksamlegar skráningar á nemendum í háskólum á borð við Yale, Georgetown, Stanford og UCLA. Í ákærunum er því haldið fram að svikamyllunni hafi verið ætlað að hjálpa auðugum Bandaríkjamönnum að greiða fyrir því að börnin þeirra kæmust inn í bestu skólana. Foreldrarnir, sem allir eru efnaðir, eru sakaðir um að hafa beitt ýmist mútum eða svikum til að tryggja börnunum sínum inngöngu. Bandaríska leikkonan Lori Loughlin og eiginmaður hennar og tískuhönnuður Mossimo Giannulli, sem einnig eru ákærð í málinu, hafa neitað sök.
Bandaríkin Bíó og sjónvarp Hollywood Tengdar fréttir Loughlin og aðrir foreldrar ákærðir fyrir fjárþvætti í háskólasvikamyllu Leikkonan Lori Loughlin og fimmtán aðrir foreldrar, þar á meðal eiginmaður hennar, sem hafa verið ákærðir í háskólasvikamyllu í Bandaríkjunum, hafa einnig verið ákærð fyrir fjárþvætti. 9. apríl 2019 21:49 Felicity Huffman og fleiri játa sekt Huffman, Lori Loughlin og tugir annarra eru sökuð um að hafa beitt mútum og öðrum ólöglegum leiðum til að koma börnum sínum inn í nokkra virtustu háskóla Bandaríkjanna og að svindla á inntökuprófum. 8. apríl 2019 21:27 Felicity Huffman játar sök fyrir dómi Bandaríska leikkonan Felicity Huffman, sem þekkt er fyrir að leika í þáttunum Aðþrengdum eiginkonum, mun í dag játa sig seka í hinni svokölluðu háskólasvikamyllu en hún er ákærð fyrir að hafa greitt 15.000 Bandaríkjadali fyrir að láta leiðrétta á laun svör dóttur sinnar á inntökuprófi til að auka líkurnar á því að hún kæmist inn í þann háskóla sem henni þætti ákjósanlegastur. 13. maí 2019 15:10 Dr. Dre dregur færslu um dóttur sína til baka eftir að upp komst um milljarða styrki "Dóttir mín komst inn í USC á eigin forsendum. Enginn á leiðinni í fangelsi,“ sagði rapparinn og athafnarmaðurinn Dr. Dre í færslu á samfélagsmiðlum en dóttir hans Truly Young fékk inngöngu inn í Háskólann í Suður-Kaliforníu á dögunum. 25. mars 2019 16:30 Mest lesið Bað fjóra menn um lífssýni en fékk föðurinn óvænt í fangið Lífið Sambandslaus Hamlet Gagnrýni Tjáir sig um auglýsinguna umdeildu og stuðning Trump Lífið Keyptu 230 fermetra einbýlishús á Seltjarnarnesi Lífið Hélt að allir væru ættleiddir Lífið Taka einbýlishús í Garðabænum í gegn Lífið Einstök ástarsaga: „Ástin okkar var nógu sterk til að yfirstíga hindranir“ Lífið Ljúffengir hafraklattar með kaffinu Lífið Varð næstum fyrir bíl á Formúlunni Lífið „Hann var bara draumur“ Lífið Fleiri fréttir Einstök ástarsaga: „Ástin okkar var nógu sterk til að yfirstíga hindranir“ Sköpunarkrafturinn var allsráðandi í Höfuðstöðinni Taka einbýlishús í Garðabænum í gegn Hélt að allir væru ættleiddir Rjóminn gleymdist en guð var að fylgjast með Bað fjóra menn um lífssýni en fékk föðurinn óvænt í fangið Keyptu 230 fermetra einbýlishús á Seltjarnarnesi Tjáir sig um auglýsinguna umdeildu og stuðning Trump Varð næstum fyrir bíl á Formúlunni Árbæjarskóli og Fellaskóli áfram í úrslit í Skrekk „Hann var bara draumur“ Tjáir sig í fyrsta sinn um bróður sinn Stjörnupar og hafnfirsk systkini sáu stærsta harmleik sögunnar Stórefnilegir skátar heiðraðir á Bessastöðum Rífandi stemning í Reykjadal Grateful Dead-söngkona látin Með heimsfræg verk sín í sumarbústað sem gerður er úr tveimur eldri húsum Ólöf mætti með Magnús upp á arminn Aniston hefur fundið ástina á ný Krýndur „kynþokkafyllsti maður ársins“ Breiðholtsskóli og Hagaskóli áfram í úrslit í Skrekk Leikkonan Diane Ladd er látin Hitinn náði nýjum hæðum á klúbbnum Málar myndir með vinstri hendi eftir heilablóðfall „Ég sótti ekki einu sinni um háskóla á Íslandi“ Sjö lykilþættir að árangursríkari samskiptum Stjörnulífið: „Ef fólk hættir að gagnrýna mig svelt ég“ Hefur farið í gegnum sambandsslit, gjaldþrot og fjárkúgunarmál frammi fyrir þjóðinni Leikstýrir kærastanum í stærsta harmleik sögunnar Fékk hvorki að setja eigið nafn né dulnefni á þættina sína Sjá meira
Loughlin og aðrir foreldrar ákærðir fyrir fjárþvætti í háskólasvikamyllu Leikkonan Lori Loughlin og fimmtán aðrir foreldrar, þar á meðal eiginmaður hennar, sem hafa verið ákærðir í háskólasvikamyllu í Bandaríkjunum, hafa einnig verið ákærð fyrir fjárþvætti. 9. apríl 2019 21:49
Felicity Huffman og fleiri játa sekt Huffman, Lori Loughlin og tugir annarra eru sökuð um að hafa beitt mútum og öðrum ólöglegum leiðum til að koma börnum sínum inn í nokkra virtustu háskóla Bandaríkjanna og að svindla á inntökuprófum. 8. apríl 2019 21:27
Felicity Huffman játar sök fyrir dómi Bandaríska leikkonan Felicity Huffman, sem þekkt er fyrir að leika í þáttunum Aðþrengdum eiginkonum, mun í dag játa sig seka í hinni svokölluðu háskólasvikamyllu en hún er ákærð fyrir að hafa greitt 15.000 Bandaríkjadali fyrir að láta leiðrétta á laun svör dóttur sinnar á inntökuprófi til að auka líkurnar á því að hún kæmist inn í þann háskóla sem henni þætti ákjósanlegastur. 13. maí 2019 15:10
Dr. Dre dregur færslu um dóttur sína til baka eftir að upp komst um milljarða styrki "Dóttir mín komst inn í USC á eigin forsendum. Enginn á leiðinni í fangelsi,“ sagði rapparinn og athafnarmaðurinn Dr. Dre í færslu á samfélagsmiðlum en dóttir hans Truly Young fékk inngöngu inn í Háskólann í Suður-Kaliforníu á dögunum. 25. mars 2019 16:30