Hótel Örk býður heppnum lesanda á jólahlaðborð með gistingu (leiknum er lokið) Hótel Örk kynnir 23. september 2019 15:45 Jólahlaðborðin á Hótel Örk njóta mikilla vinsælda.
Jólahlaðborðin á Hótel Örk hafa notið mikilla vinsælda um árabil enda sjást sömu ánægðu andlitin ár eftir ár. Hópar af ýmsum stærðum, heilu fjölskyldurnar og vinahópar nýta þetta tækifæri til að skreppa út fyrir bæjarmörkin og njóta góðrar stundar saman. Hótelgisting í fallegu umhverfi er alltaf notaleg og það er góð slökun í því fólgin að skipta um umhverfi, borða góðan mat og síðast en ekki síst njóta þess að gista í góðu rúmi í fallegu herbergi. Flest herbergin á Hótel Örk eru annaðhvort ný eða nýlega endurnýjuð. Sundlaugin hefur alltaf aðdráttarafl enda er fátt betra en að mýkja vöðvana í gufubaði eða láta líða úr sér í heitum potti. Á jólahlaðborðinu er matseðilinn settur saman þannig að fólk fær tækifæri til að bragða á öllu en úrvalið er samt ríkulegt. Og talandi um matseðilinn. Oft vill það nú vera þannig að forréttirnir eru sérstaklega vinsælir enda eru gestirnir auðvitað svengstir fyrst og er matseðillinn auðvitað alveg sérstaklega girnilegur. En hvað skyldi nú vera vinsælast á forréttaborðinu? Gefum yfirkokkinum orðið: „Já, það fer náttúrlega alltaf mikið af síldinni hjá okkur, við erum með þrjá rétti þar sem síld kemur við sögu. En það sem hefur notið mikilla vinsælda í forréttum hjá okkur er tvímælalaust villibráðarsalatið. Enda er bæði gæsabringa og hreindýrakjöt í því ásamt fleiru ómótstæðilegu góðgæti. Þeir sem koma ár eftir ár hafa oft orð á því að þeir hlakki strax til að koma á jólahlaðborðið okkar að ári – ekki síst til að fá villibráðarsalatið sem er einn vinsælasti forrétturinn okkar.“ Og nú langar okkur til gefa lesanda tækifæri til að koma á jólahlaðborðið okkar með því að taka þátt í smáleik. Leikurinn snýst einmitt um forréttina á jólahlaðborðinu hér á Hótel Örk og þeir sem hafa hug á að prófa ættu að skoða matseðilinn fyrir jólahlaðborðið á vefsíðu hótelsins – það ætti að auðvelda viðkomandi að leysa þrautina í leiknum.Loading…
Matur Mest lesið Bað fjóra menn um lífssýni en fékk föðurinn óvænt í fangið Lífið Klettaskóli og Langholtsskóli áfram í úrslit Skrekk Lífið Draumur að vinna í listrænum heimi Stokkhólms Lífið Hálft ár af hári Lífið Tjáir sig um auglýsinguna umdeildu og stuðning Trump Lífið Sambandslaus Hamlet Gagnrýni Lúmsk einkenni D-vítamínskorts Heilsuvísir Einstök ástarsaga: „Ástin okkar var nógu sterk til að yfirstíga hindranir“ Lífið Alvöru kósýkvöld með frábærum afsláttum, gleði og góðri stemningu Lífið samstarf Keyptu 230 fermetra einbýlishús á Seltjarnarnesi Lífið Fleiri fréttir Sól, borg, skíði og flug á einum stað Alvöru kósýkvöld með frábærum afsláttum, gleði og góðri stemningu Góð tannheilsa er hluti af hamingju og heilsu Kvefið gengur hraðar yfir með ColdZyme® Vetrartískan er mætt í Boozt með kósýheit Nýir réttir Serrano aðgengilegir í LifeTrack appinu Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu „Við eigum meira blóð en blóðbankinn!“ Flytja alla Springsteen slagarana í Hörpu Frábær árangur í meðferðarstarfi Kalklitir og Slippfélagið mála framtíðina saman Hárolía, vinur eða óvinur hársins? Dineout gjafabréf er jólagjöfin í ár Hjálpa öðrum að eignast lítil kraftaverk Þarf alltaf að vera vín? Trúði varla eigin augum þegar hún sá fyrir og eftir myndirnar Úrval Útsýn hefur svarað kalli um björgunarfargjöld Þessi litla breyting breytti í raun öllu! Eldhúspartý KVIK er á laugardaginn Hug-A-Lums þyngdarbangsar sem allir elska The Ultimate Eagles halda tónleika í Hörpu Sjá meira