Á morgun má búast við breytingu þar á en þa nálgast lægð úr suðvestri. Á Suður- og Vesturlandi er búist við suðaustankalda með smáskúrum og annað kvöld hvessir við suðvesturströndina. Hægari vindur og víða léttskýjað norðan- og austanlands.
Á fimmtudag er svo útlit fyrir suðaustanstrekking með súld eða rigningu en þurru og björtu veðri norðanlands.
Veðurhorfur á landinu
Hæg austlæg átt, skýjað með köflum og sums staðar dálítil væta S-lands í dag.Suðaustan 8-13 m/s og smáskúrir á morgun, en hægari og léttskýjað á N- og A-landi.
Suðaustan 13-18 við suðvesturströndina um kvöldið. Hiti 3 til 10 stig að deginum, en víða næturfrost N- og A-lands.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á miðvikudag:Suðaustan 8-13 og dálítil væta, en hægari og léttskýjað N- og A-lands. Suðaustan 13-18 við SV-ströndina um kvöldið. Hiti 3 til 9 stig.
Á fimmtudag og föstudag:
Suðaustan 8-18 m/s, hvassast SV-til. Léttskýjað N-lands, annars skýjað en úrkomulítið. Hiti 5 til 10 stig.
Á laugardag:
Hvöss austanátt og rigning, en þurrt að kalla N-lands. Hiti breytist lítið.
Á sunnudag og mánudag:
Suðaustanátt og milt veður. Rigning með köflum, en úrkomulítið norðan heiða.