HK og ÍBV gerðu 29-29 jafntefli í 4. umferð Olís-deildar kvenna er liðin mættust í Kórnum í dag.
Eyjastúlkur voru tveimur mörkum yfir, 17-15, er liðin gengu til búningsherbergja en eftir spennandi lokamínútur skildu liðin jöfn.
Kristín Guðmundsdóttir jafnaði metin á síðustu mínútu leiksins með sínu fyrsta marki í leiknum og lokatölur 29-29.
Jóhanna Margrét Sigurðardóttir og Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir gerðu fimm mörk hvor fyrir HK en Ester Óskarsdóttir skoraði tíu mörk fyrir Eyjastúlkur.
Bæði lið eru því áfram með þrjú stig í 5. til 6. sæti deildarinnar eftir fjóra leiki.
Jafnt í Kórnum
Anton Ingi Leifsson skrifar
