Markmiðið með brókastuldinum var að koma höndum yfir sýni af erfðaefni Baghdadi, sem var svo notað til að ganga úr skugga um að hann væri látinn.
Háttsettur embættismaður í Sýrlenska lýðræðishernum, sem Kúrdar leiða, sagði frá því á Twitter í gærkvöldi að Kúrdar hafi starfað með CIA, Leyniþjónustu Bandaríkjanna, við leitina að Baghdadi frá 15. maí. Í röð tísta segir Polat Can að Baghdadi hafi flutt á milli samastaða reglulega og hann hafi fljótlega ætlað að flytja sig um set til Jarablus nærri landamærum Tyrklands.
Hann segir einnig að undanhald bandarískra hermanna frá innrás Tyrkja gegn Kúrdum hafi tafið árásina gegn Baghdadi en heimildarmenn fjölmiðla vestanhafs hafa sagt svipaða sögu.
Sjá einnig: Undanhald Trump sagt hafa raskað aðgerðinni gegn Bagdadi
Polat Can segir Kúrda hafa skipað lykilhlutverk í aðgerðinni gegn Baghdadi. Búið hafi verið að gera áætlun varðandi það að ráðast gegn Baghdadi í Jarablus, ef honum hefði tekist að flytja sig þangað. Þá segir hann að Abu Hassan al-Muhajir, sem kallaður var talsmaður ISIS, hafi verið í Jarablus að undirbúa komu Baghdadi.
Al-Muhajir var felldur í loftárás nærri Jarablus á sunnudaginn.
Njósnarinn fór með hermönnum
Mazloum Abdi, hershöfðingi SDF, segir svipaða hluti í viðtali við NBC News í Bandaríkjunum. Hann segir njósnarar Kúrda hafa geta gefið þeim upplýsingar um staðsetningu Baghdadi, fjölda varða og göngin undir húsunum.Abdi segir njósnarann hafa verið á vettvangi þegar árásin fór fram og að hann hafi farið á brott með hermönnum Bandaríkjanna.
Sjá einnig: Hvernig hermenn Bandaríkjanna duttu í „lukkupottinn“
Þá segir Abdi einnig að njósnarinn hafa ekki bara náð að útvega brækur Baghdadi. Hann hafi einnig útvegað blóðsýni. Brókunum stal hann fyrir um þremur mánuðum og blóðsýnið útvegaði hann fyrir um mánuði.
Þau sýni voru borin saman við önnur sem Bandaríkin áttu og fékkst þar með staðfesting á því að um Baghdadi var að ræða.
Hér má sjá mynd sem Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, tísti af einum hundanna sem notaðir voru til að finna Baghdadi. Þessi tiltekni hundur særðist lítillega í árásinni.
We have declassified a picture of the wonderful dog (name not declassified) that did such a GREAT JOB in capturing and killing the Leader of ISIS, Abu Bakr al-Baghdadi! pic.twitter.com/PDMx9nZWvw
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) October 28, 2019
Þakkaði Rússum fyrst
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sem hefur verið sakaður um að yfirgefa sýrlenska Kúrda, þakkaði þeim fyrir aðkomu þeirra að árásinni í ræðu sinni á sunnudaginn. Hann virtist þó gera lítið úr framlagi þeirra og sagði að þeir hefðu ekki tekið beinan þátt í aðgerðinni. Þeir hefðu þess í stað veitt „einhverjar upplýsingar sem reyndust hjálpa“.Fyrst þakkaði Trump Rússum og Tyrkjum fyrir aðstoð þeirra, sem virðist að mestu hafa falist í því að skjóta þyrlur Bandaríkjanna sem fluttu hermennina ekki niður.
„Ég vil þakka þjóðum Rússlands, Sýrlands, Tyrklands og Írak,“ sagði Trump. „Ég vil líka þakka sýrlenskum Kúrdum fyrir vissa aðstoð sem þeir gátu veitt okkur.“
Í samtali við fjölmiðla sagði Robert O‘Brien, nýr þjóðaröryggisráðgjafi Trump, að ekki ætti að lesa of mikið í þakkir hans til Rússlands og Tyrklands. Hermenn hafi þurft að fljúga yfir yfirráðasvæði Sýrlendinga, Tyrkja og annarra og Trump hafi kunnað að meta að hermennirnir hafi verið látnir óáreittir.
„Kúrdarnir spiluðu mikilvægt hlutverk í aðgerðinni og við erum þakklátir þeim og SDF og bandamönnum okkar þar,“ sagði O‘Brien.