Ísafjarðartröllið skrifaði undir og fimm tímum síðar óskaði ÍR eftir aðstoð Anton Ingi Leifsson skrifar 24. október 2019 09:00 Sigurður í leik með ÍR á síðustu leiktíð. vísir/bára
Sigurður Gunnar Þorsteinsson gekk í raðir ÍR í gærkvöldi en hann skrifaði undir tveggja ára samning við Breiðhyltinga. Sigurður er oft nefndur Ísafjarðartröllið, en þaðan er hann ættaður. Hann var í lykilhlutverki hjá ÍR á síðustu leiktíð en liðið fór alla leið í úrslitarimmuna þar sem þeir töpuðu fyrir sexföldum Íslandsmeisturum KR. Í sumar fór hann svo til BC Orchies í Frakklandi en fjárhagsvandræði urðu til þess að Sigurður varð skyndilega samningslaus. Því gat hann leitað á ný ævintýri. Hann er því kominn á ný í Breiðholtið en hann kostar greinilega skildinginn ef marka má færslu körfuknattleiksdeildar ÍR. „Í ljósi nýlegra frétta þá þarf félagið á fjáröflun að halda ... Verðlaun verða veitt þeim aðila sem safnar mest,“ segir í færslu á Facebook-síðu félagsins í gær. Þeir koma til dyranna eins og þeir eru klæddir í Breiðholtinu. Þessar nýlegu fréttir eru væntanlega þær að Sigurður Gunnar hafi skrifað undir samning við liðið en reikna má með því að Sigurður hafi verið eftirsóttur. Sigurður getur leikið sinn fyrsta leik annað kvöld er ÍR-ingar mæta Þór Akureyri á útivelli á föstudagskvöldið.
Subway-deild karla ÍR Sigurður Gunnar Þorsteinsson gegn ÍR Mest lesið Bað kærastann sinn afsökunar Sport Konunum fórnað í peningavandræðum karlaliðs Barcelona Fótbolti „Fáránleg staða sem er komin upp“ Enski boltinn Spáir Bröndby sigri í einvíginu á móti Víkingum Fótbolti Donnarumma sagður á leið til City í sögulegum skiptum Fótbolti Gullsending Sveindísar Jane valin sú besta Fótbolti Hent út úr Tottenham liðinu fyrir óstundvísi Enski boltinn Rashford segir Man. United fast í einskismannslandi Enski boltinn Enska augnablikið: Hefði gengið af Hjálmari dauðum Enski boltinn Brøndby brennir skipin: „Verðum að sækja og svo verðum við að sækja meira“ Fótbolti Fleiri fréttir Jaka skilinn eftir og þrettán leikmenn berjast um hin tólf sætin Með fyrsta þrjátíu tuttugu leikinn í sögu WNBA Ótryggður Giannis tekur ekki þátt í undirbúningi Grikklands Þjóðverjar unnu Doncic lausa Slóvena Pólland missir NBA stjörnu fyrir Eurobasket Stelpurnar töpuðu þrátt fyrir frábæra byrjun Stockton segir að LeBron „hafa notað þyrlu til að komast á toppinn“ Serbi inn í teig hjá Stólunum: „Ég veit að áhorfendurnir elska körfubolta“ Stelpurnar spila um sjöunda sætið á Eurobasket „Þeir eiga allir skilið að fara í lokahópinn“ Stelpurnar Norðurlandameistarar og strákarnir fengu silfur Þýskaland lagði Slóvena í undirbúningi fyrir Eurobasket Celtics festa þjálfarann í sessi NBA stjarna borin út Litáen of stór biti fyrir íslensku stelpurnar Öruggar með besta árangur Íslands á EM frá upphafi Ákærður fyrir að hnupla treyju LeBron sem seldist seinna á nær hálfan milljarð Ísland í átta liða úrslit eftir ótrúlega endurkomu Dildó-faraldurinn heldur áfram í WNBA Sigtryggur Arnar í mjög fámennan hóp í sögu landsliðsins „Hættiði að henda dildóum inn á völlinn“ Stórskotasýning Sigtryggs dugði ekki til sigurs Trúðurinn Arenas í vondum málum eftir handtöku Grindavík fær leikstjórnanda frá Grikklandi Stórt tap á Ítalíu Ísland mátti þola stórt tap Luka framlengir til þriggja ára í Los Angeles Fékk vægt áfall: „Með fullt af missed calls“ Stjórnendur NBA reyna að sannfæra Real Madrid og fleiri forrík félög KR sækir ungan bakvörð Sjá meira