Vildi sjá viðtalið áður en það færi í loftið
Vísir hefur fjallað ítarlega um málið og var við málflutning þess í héraðsdómi Reykjavíkur. Gyða Dröfn vildi fá fimm milljónir króna. Hvorki Jón Ársæll né Ríkisútvarpið mótmæltu bótaskyldu en hins vegar vildu lögmenn hinna ákærðu meina að bótakrafan væri allt of há.Jón Ársæll tók viðtal við Gyðu Dröfn í tengslum við þætti hans Paradísarheimt. Gyða fékk svo bakþanka og vildi ekki að viðtalið birtist en hún vill meina að það hafi verið veitt með því skilyrði að hún fengi að sjá það áður en því væri sjónvarpað. En, því sinnti Jón Ársæll og Ríkisútvarpið ekki.
Deilt um sáttavilja
Ólafur Valur Guðjónsson, lögmaður stefnanda, sagði við málflutninginn engan sáttavilji fyrir hendi hvorki hjá Ríkisútvarpinu né Jóni Ársæli og því væri málið nú komið í þennan farveg. Þessu mótmælti Stefán A. Svensson lögmaður Ríkisútvarpsins og sagði að ekki væri hægt að leggja mál þannig upp, á þeim forsendum að nefnd sé tala x og á hana sé ekki fallist, að enginn sáttavilji hafi verið fyrir hendi. Það hafi farið fram fundir um málið.Ólafur sagði að viðtalið hafi valdið skjólstæðingi hans miklum miska, eðli máls væri einfaldlega þannig en þar var komið inn á viðkvæm persónuleg atriði. Og hún væri ekki á góðum stað, hvorki fyrir né eftir. Bæði lögmenn Jóns Ársæls sem Ríkisútvarpsins lögðu á það áherslu að persónuverndarákvæði stjórnarskrár hafi ekki verið brotin.
Ekki liggur fyrir hvort málinu verður áfrýjað, ekki tókst að ná í Ólaf Val lögmann en að teknu tilliti til málflutnings lögmanna Jóns Ársæls og Ríkisútvarpsins þá mætti ætla að dómurinn þyki vel ásættanlegur á þeim bænum. Jón Ársæll vildi ekki tjá sig um málið þegar Vísir leitaði eftir sjónarmiðum hans.