Maðurinn er 27 ára og ákærður fyrir að hafa myrt Millane, sem var 22 ára á bakpokaferðalagi um Nýja-Sjáland, í byrjun desember í fyrra. Maðurinn, sem hefur ekki verið nafngreindur á grundvelli nýsjálenskra laga, neitar sök og heldur því fram að andlát Millane hafi verið slys. Maðurinn er sakaður um að hafa kyrkt hana við samfarir.
Settist ofan á hana í miðjum klíðum
Réttarhöld í málinu héldu áfram í nýsjálensku borginni Auckland í morgun. Þar bar vitni ung kona, sem kvaðst hafa kynnst hinum grunaða á stefnumótaforritinu Tinder, líkt og Millane. Þau hafi fyrst farið á stefnumót í mars í fyrra og aftur í nóvember sama ár, skömmu áður en Millane var myrt.Sjá einnig: „Einhver með blóð á iljunum“ gekk um herbergið
Konan lýsti því að á seinna stefnumótinu hafi hún og maðurinn farið heim í íbúð hans og byrjað að stunda kynlíf. Í miðjum klíðum hafi maðurinn skyndilega hagrætt sér þannig að hann stóð yfir henni og að því búnu sest ofan á hana.
„Hann hafði gripið í framhandleggina á mér og sett allan þrýstinginn á handleggina á mér þannig að ég gat ekki andað og gat ekki hreyft handleggina. Ég byrjaði að sparka, til að sýna að ég gæti ekki andað. Ég sparkaði kröftuglega. Hann hefði fundið fyrir því að ég berðist um. Ég var dauðhrædd.“
Hrædd um að deyja
Þá lýsti konan því að hún hefði á endanum náð andanum aftur með því að snúa höfðinu. Í millitíðinni hefði hún reynt að losna með því að þykjast hafa misst meðvitund en maðurinn hefði áfram setið sem fastast. Konan taldi hann hafa setið á sér í allt að tvær mínútur og að hún hafi verið hrædd um að deyja.
Innt eftir því af hverju konan hefði haldið áfram samskiptum við manninn eftir stefnumótið sagðist hún ekki hafa viljað styggja hann. Hann hefði til að mynda tjáð henni að hann væri viðriðinn glæpagengi og hefði „gengið í skrokk á“ fólki á skemmtistöðum í borginni.
Spjallaði við konuna milli Google-leita
Maðurinn bað konuna um að hitta sig aftur þann 1. desember síðastliðinn, sama dag og hann fór á stefnumót með Millane. Hún afþakkaði boðið. Þá kom fram fyrir dómi að maðurinn hefði verið í samskiptum við konuna um hálftíma áður en hann hitti Millane og svo aftur snemma morguninn eftir, á milli þess sem hann leitaði að „dauðastirðnun“ og „Waitakere-fjallgarðinum“ á netinu. Lík Millane fannst við téðan fjallgarð í útjaðri Auckland um viku síðar.Önnur kona bar einnig vitni fyrir dómi í málinu í dag. Sú kynntist manninum einnig á Tinder og sagðist hafa hafnað boði hans um stefnumót. Hún sagði að maðurinn hefði verið óþægilegur og aðgangsharður og lýst yfir vilja til kynlífsathafna, sem konunni þóknaðist ekki. Þannig hefði hann tjáð henni að hann væri hrifinn af því að þrengja að öndunarvegi bólfélaga sinna og vildi drottna yfir þeim.
Upptökur úr eftirlitsmyndavélum hafa varpað nokkuð skýru ljósi á kvöldið sem Millane var myrt. Hún og maðurinn flökkuðu á milli bara að kvöldi 1. desember og fóru að því loknu heim til hans.
Þegar hefur komið fram að maðurinn fór á Tinder-stefnumót með konu daginn eftir að Millane var myrt. Lík Millane var þá í ferðatösku í íbúð hans. Manninum er gefið að sök að hafa grafið líkið í ferðatöskunni rétt fyrir utan borgarmörk Auckland, eins og áður segir.