Ástin deyr í hnattrænni hlýnun Þórarinn Þórarinsson skrifar 11. nóvember 2019 09:00 Ása með öðrum útvöldum leikstjórum sem eiga eftir að fylgja myndum sínum á pólitískar sýningar víða um heim. Hún stefnir að því að koma mynd sinni í sýningar á Íslandi sem fyrst.
Kvikmyndaleikstjórinn Ása Helga Hjörleifsdóttir kom, sá og vakti mikla athygli á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Róm nýlega þegar hún sýndi stuttmyndina Last Dance þar sem hún speglar verstu hugsanlegu afleiðingar hnattrænnar hlýnunar í þeim persónulegu hörmungum sem sambandsslit geta orðið. Ása stimplaði sig rækilega inn sem eina björtustu vonina í íslenskri kvikmyndagerð með Svaninum fyrir nokkrum misserum og er eini norræni leikstjórinn í hópi þeirra ellefu sem samtökin ART for The World og Sameinuðu þjóðirnar fengu til þess að gera stuttmyndir sem fjalla á einhvern hátt um loftslagsvána. „Adelina von Fürstenberg sem heldur utan um þetta samstarf Art For The World og Sameinuðu þjóðanna hafði séð Svaninn og fannst hún vera einhvers konar óður til náttúrunnar,“ segir Ása í samtali við Fréttablaðið. „Ég hef mikinn áhuga á sambandi manns og náttúru en þetta kom mér samt pínu á óvart þegar hún hafði samband við mig,“ heldur Ása áfram og bætir við að burtséð frá því hafi Adelina viljað fá mynd frá norðurslóðum.Ástin og jörðin Kvikmyndaleikstjórarnir ellefu koma frá öllum heimsálfum en Ása er sem fyrr segir eini fulltrúi norðursins. Hópurinn kom saman í Róm á dögunum og sýndi myndirnar við hátíðlega athöfn. „Okkur voru sett lengdarmörk og viðfangsefnið var loftslagsbreytingar en að öðru leyti höfðum við bara frjálsar hendur,“ segir Ása sem kaus að beita myndhvörfum í Last Dance.Ása og Þorvaldur Davíð fylgdu Last Dance til Rómar þar sem smættun heimsendis niður í sambandsslit vafðist ekki fyrir mannskapnum sem tók leikstjóranum og leikaranum fagnandi.„Mín nálgun er kannski frekar abstrakt því þetta er saga um sambandsslit en líka mögulega endalok jarðarinnar,“ segir Ása sem þannig freistaði þess að smætta umfangsmikið og gríðarlega flókið efni niður í eitthvað sem allir ættu að þekkja. „Mér finnst einhvern veginn áhugavert hvers vegna okkur reynist svona erfitt að skilja þetta neyðarástand og ég er alveg þar með talin,“ segir hún og velti fyrir sér hvort hægt væri að ná til fólks „ef maður færir þetta í eitthvert form, eða bara yfir á mannamál, eitthvað sem allir skilja. Til dæmis sambandsslit, sem flestir hafa upplifað á einhvern hátt.“Unaðslegur smellur Leikararnir sem Ása teflir fram í hlutverki parsins sem upplifir heimsendi þegar ástin verður fyrir gróðurhúsaáhrifum eru ekki af verri endanum: Hera Hilmars og Þorvaldur Davíð. „Það var ofboðslega gaman hvað þau voru alveg til í þetta. Ég hef náttúrlega unnið með Þorvaldi áður í Svaninum en ekki með Heru en mig hefur lengi langað að vinna með henni,“ segir Ása um alþjóðlegu stjörnuna sem blessunarlega fann smugu í þéttri dagskrá sinni. „Mér fannst þau líka vera á svipuðum stað og ég gagnvart loftslagsmálunum þannig að þetta small bara einhvern veginn og það var alger unun að fá að vinna með þeim sem listamönnum.“ Þorvaldur Davíð sá sér fært að fylgja Ástu og myndinni á pólitíska kvikmyndahátíðina í Róm þar sem þau gerðu mikla lukku. „Viðtökurnar voru mjög góðar og fólk var mjög hrifið af okkar mynd,“ segir Ása en myndirnar voru jafn ólíkar og þær voru margar. „Þarna var líka alls konar fólk. Frá Sameinuðu þjóðunum, mikið af pólitíkusum sem og sérfræðingum í loftslagsmálum þannig að þetta var að mörgu leiti ólíkt öðrum frumsýningum, sem ég hef verið á. Ása segist hafa þungar áhyggjur af ástandi loftslagsmála og að gerð myndarinnar hafi síst verið til þess fallin að slá á þær en hún hafi um leið ranglað úr einhvers konar roti, gerð myndarinnar hvatti hana til aðgerða og dáða. Hætta að væla og gera eitthvað, eins og hún orðar það. „Ég held örugglega að margir hafi, eins og ég hugsað meðvitað um þetta lengi en þessi frasi að „vekja til umhugsunar“ er orðinn algerlega úreltur núna,“ segir Ása sem hefur alltaf forðast predikanir í list sinni en í hinsta dansinum komst hún að því að það er hægt að fjalla um slík málefni án þess að fórna hinu listræna.
Birtist í Fréttablaðinu Bíó og sjónvarp Íslendingar erlendis Mest lesið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Lífið Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið Lífið „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Lífið Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Lífið Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Lífið Hera Björk mun kynna stigin Lífið Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Bíó og sjónvarp 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Lífið Fleiri fréttir Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Sjá meira