„Þurftiru að koma inn á það? Þetta er illa gert af þér,“ sagði Benedikt.
Þannig er mál með vexti að Jenný Lovísa Benediktsdóttir spilar undir stjórn pabba síns hjá KR en hún var utan hóps í þessum tiltekna leik og var skráð sem aðstoðarþjálfari í leiknum.
„Hún byrjar bara að þenja sig á bekknum. Fær á sig tæknivillu í fyrri hálfleik, fyrir ekki neitt að því er hún segir. Alveg eins og pabbi hennar hefur fengið, fyrir ekki neitt,“ sagði Benni léttur.
Atvikið og umræðuna í heild má sjá í spilaranum efst í fréttinni.