Tiger Woods var yfirburðamaður í golfheiminum fyrir rúmum áratug og met Jack Nicklaus í risastitlum var þá í mikilli hættu. Þakkagjörðarhátíðin árið 2009 reyndist hins vegar verða Tiger ansi afdrifarík. Um þessar mundir eru liðin tíu ár síðan að einkalíf besta kylfings heims sprakk í andlitið á honum og heimurinn komst að því hvert hið raunverulega líf hans var á bak við tjöldin.
Í tilefni af þessu „afmæli“ árekstursins fyrir utan heimili Tiger Woods hefur ESPN tekið saman helstu atburðina á þessum viðburðaríka og dramatíska áratugi Tigers frá 2009 til 2019.
On Nov. 27, 2009, Tiger Woods ran into a fire hydrant.
That was just the beginning of a decade in which so much -- good, bad and ugly -- enveloped his life. (via @BobHarig) https://t.co/gtyNDjR2BA
— ESPN (@espn) November 27, 2019
Tiger Woods lifði tvöföldu lífi og allt komst þetta upp nóttina eftir Þakkagjörðarhátíðina 2009. Tiger keyrði þá undir áhrifum á brunahana og síðan á tré nágrannans rétt fyrir utan heimili sitt.
Elin, kona Tigers notaði golfkylfu til að brjóta afturgluggann á bílnum þar sem Tiger lá meðvitundarlaus. Hann var síðan fluttur á sjúkrahús og var frá keppni fram á næsta ár.
Í framhaldinu komu út fréttir um framhjáhald Tigers og að hjónaband hans væri að enda. Hann sagðist ætla að reyna að bjarga hjónabandinu en tókst það ekki.
Tiger viðurkenndi síðan sjálfur í sjónvarpávarpi í byrjun ársins 2010 að hann hafi átt í fjölda framhjáhalda en hann hafði áður farið í meðferð fyrir kynlífsfíkla.
Það var ekki fyrr en árið 2018 sem Tiger Woods komst aftur á skrið en auk vandræðanna utan golfvallarins þá glímdi hann líka við erfið bakmeiðsli sem háðu honum mikið og kölluðu á hverja aðgerðina á fætur annarri.
Stóra endurkoman var á Mastersmótinu í apríl síðastliðnum þegar Tiger Woods vann glæsilegan sigur. Þetta var fimmtándi sigur hans á risamóti en sá fyrsti frá árinu 2008.
Yfirgerð ESPN er fróðlegur lestur. Tiger Woods var einn allra vinsælasti íþróttamaður heims þegar allt fór í rugl í nóvember 2009 og það hafa mjög margir mikinn áhuga á gengi hans. Þetta sést ekki síst á áhorfi á þau golfmót þar sem hann nær sér á strik.
Hér fyrir neðan má sjá myndband tengdu grein ESPN en þar líka farið yfir söguna í máli og myndum.