Þættirnir eru væntanlegir á dagskrá Stöðvar 2 í apríl eða í maí, það skýrist fljótlega eftir áramót og eins og Eggerti er von og vísa þá má gera ráð fyrir því að um skemmtilega þætti sé að ræða. Eggert sendi okkur smá klippu úr þáttunum sem má sjá hér fyrir neðan.
Þarna eru á ferðinni bresku leikararnir Robson Green og James Murray sem báðir er að góðir kunnir áhorfendum Stöðvar 2. En Robson fer með aðalhlutverk í hinum vinsælu glæpaþáttum Grantchester sem nú eru á dagskrá Stöðvar 2. Þeir voru gestir í Sporðaköstum í sumar, en Stöð 2 mun einmitt sýna þættina í vor sem kemur.
Flugan Old Sock er í raun skírð af David Bowie. Einhverju sinni þegar þeir félagar voru að skrifast á kallaði Bowie Clapton „Old sock“. Þaðan kemur nafnið," sagði Eggert í samtali við Veiðivísi.
Nýja serían er með allt öðru sniði en verið hefur. Viðmælendur eru allir útlendingar sem eru vel þekktir ýmist sem listamenn eða veiðimenn. Eggert segir að þetta hafi verið krefjandi en ótrúlega skemmtilegt.
