Vladimir Kolek og Sami Lehtinen, landsliðsþjálfarar karla í íshokkí, hafa valið lokahóp sem tekur þátt í undankeppni Ólympíuleikanna 2022 í Rúmeníu dagana 12.-15. desember næstkomandi.
Þátttökuþjóðir auk Íslands eru Rúmenía, Ísrael og Kyrgystan. Sigurvegarar úr þessum riðli munu svo taka þátt í þriðju umferð undankeppninnar í febrúar 2020.
Fyrsti leikur Íslands er á móti Kyrgystan, annar leikur Íslands er á móti Ísrael og svo er lokaleikurinn á móti Rúmeníu kl 17.
Allir leikir undankeppninnar verða í beinni útsendingu á streymisrás alþjóða íshokkísambandsins og má finna allar upplýsingar um liðin og keppnina hér.
Landslið Íslands - undankeppni Ólympíuleikanna 2022
Dennis Mikael Hedström
Jóhann Björgvin Ragnarsson
Ingvar Þór Jónsson (Fyrirliði)
Sigurður Freyr Þorsteinsson
Róbert Freyr Pálsson
Vignir Freyr Arason
Gunnar Aðalgeir Arason
Atli Þór Sveinsson
Bjarki Reyr Jóhannesson
Andri Már Mikaelsson
Jóhann Már Leifsson
Hafþór Andri Sigrúnarson
Kristján Árnason
Sölvi Freyr Atlason
Miloslav Racansky
Ólafur Hrafn Björnsson
Kristján Albert Kristinsson
Axel Snær Orongan
Robbie Michael Sigurdsson
Heiðar Örn Kristveigarson
Egill Birgisson
Landsliðshópurinn fyrir undankeppni ÓL klár
Arnar Geir Halldórsson skrifar
