Sara Sigmundsdóttir jók forskot sitt á toppi Dubai CrossFit Championship í áttundu grein mótsins. Sara endaði þar í 2. sæti á eftir Jamie Greene frá Nýja-Sjálandi.
Fyrir níundu og síðustu grein mótsins er Sara með 712 stig, 46 stigum á undan Karin Frey frá Slóvakíu.
Sara var með 36 stiga forskot á Frey fyrir lokadaginn.
Hún hefur unnið tvær greinar, tvisvar sinnum lent í 2. sæti og tvisvar í því þriðja.
Eik Gylfadóttir lenti í 8. sæti í áttundu greininni. Fyrir vikið fór hún úr 17. sæti mótsins í það fjórtánda. Hún er með 486 stig.
Fylgjast má með beinni útsendingu frá lokadegi mótsins með því að smella hér.
Staðan í kvennaflokki fyrir síðustu greinina:
1. Sara Sigmundsdóttir, Ísland - 712
2. Karin Frey, Slóvakía - 666
3. Samantha Briggs, Bretland - 651
4. Gabriela Migala, Pólland - 632
5. Jamie Greene, Nýja-Sjáland - 627
6. Alessandra Pichelli, Ítalía - 606
7. Emily Rolfe, Kanada - 591
8. Julie Hougård, Danmörk - 554
9. Emma Tall, Svíþjóð - 541
10. Mikaela Norman, Svíþjóð - 521
Sara með 46 stiga forskot í Dúbaí
