Það er verið að gera knattspyrnumenn að blórabögglum, skrifar Wayne Rooney í pistli í Sunday Times varðandi umræðu um það hvernig leikmenn geti best veitt fjárhagslegan stuðning í baráttunni vegna kórónuveirufaraldursins.
Matt Hancock heilbrigðisráðherra Bretlands vill að leikmenn í ensku úrvalsdeildinni, sem margir eru á himinháum launum, leggi meira að mörkum í baráttunni gegn faraldrinum. Úrvalsdeildin hefur lagt til að leikmenn lækki um 30% í launum til að verja störf og rekstur knattspyrnufélaganna, en leikmannasamtökin í Bretlandi höfnuðu því og sögðu það bitna á heilbrigðiskerfinu, því þar með yrði ríkið af miklum skatttekjum.
„Af hverju eru fótboltamenn allt í einu orðnir blórabögglarnir? Það að úrvalsdeildin segi svona opinberlega frá sínu tilboði, eins og gert var, setur pressu á leikmenn og kemur þeim í stöðu þar sem þeir geta ekki komið vel út. Ef að leikmenn segjast ekki geta samþykkt 30% flata launalækkun, jafnvel þó að sumir þeirra myndu í raun og veru ekki ráða við það fjárhagslega, verður það túlkað sem svo að „ríkir leikmenn hafna launalækkun“.
Mér finnst þetta skrýtið því að allar aðrar ákvarðanir í þessu ferli hafa verið teknar á bakvið luktar dyr, en þetta var gert opinbert. Til hvers? Það er eins og það sé til að skotin beinist að leikmönnum – neyða þá til að borga reikninginn vegna tekjumissis,“ skrifaði Rooney, sem er spilandi þjálfari hjá Derby.
Betra að semja við hvern leikmann fyrir sig
Rooney bendir á að fyrirliðar liðanna í úrvalsdeildinni hafi átt í viðræðum um það að búa til sjóð til að styrkja heilbrigðiskerfið. Hann segir þær 20 milljónir punda sem enska úrvalsdeildin hafi heitið aðeins vera dropa í hafið miðað við það sem farið sé fram á af leikmönnum. Stóru félögin þurfi flest hver ekki á því að halda að leikmenn lækki í launum, en ef svo sé þá sé fótboltinn í mikið verri stöðu en nokkurn hafi órað fyrir.
„Það er hneyksli hvernig hlutirnir hafa verið síðustu daga. Ég skil alveg að leikmenn eru hátt launaðir og geta gefið frá sér laun. En það ætti að gera hjá hverjum leikmanni fyrir sig. Einn gæti sagst hafa efni á 30% lækkun en annar hefði bara efni á 5%. Það er sama hvernig horft er á þetta, við erum auðveld skotmörk. Það sem gleymist er að helmingur tekna okkar fer í skatt. Peningar sem fara til ríkisins, sem hjálpa heilbrigðiskerfinu,“ skrifaði Rooney.