Líkur á eldingum og blíðviðrið kveður í bili Sylvía Hall skrifar 24. maí 2020 23:26 Mjög óstöðugt loft er yfir landinu og því líkur á eldingum vestantil. Vísir/Getty
Óstöðugt loft er yfir landinu á morgun og má því búast við myndarlegum skúraklökkum síðdegis og auknum líkum á eldingum að því er fram kemur í athugasemd veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands. Einkum eru líkur á eldingum yfir vestanverðu landinu. Blíðviðri síðustu daga virðist vera að kveðja höfuðborgarsvæðið í bili. Það er spáð úrkomu næstu daga, á morgun þrír til átta metrar á höfuðborgarsvæðinu og skúrir. Þá bætir í úrkomu annað kvöld. Ekkert lát virðist vera á skúrum á suðvesturhorninu fyrr en um helgina. Íbúar á höfuðborgarsvæðinu mega því búa sig undir vætusama viku en útlit er fyrir að það rofi aðeins til næstu helgi og verði að minnsta kosti minni úrkoma. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Vestan og suðvestan 8-13 og skúrir, en 15-20 m/s með suðurströndinni framan af degi. Hiti 5 til 13 stig, mildast suðaustantil. Á miðvikudag: Suðvestan 10-15 og rigning, en þurrt að kalla um landið austanvert. Hiti 6 til 12 stig. Á fimmtudag: Sunnan 5-13 og dálítil rigning eða súld, en bjart með köflum norðan- og austanlands. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast norðaustantil. Á föstudag: Fremur hæg suðlæg átt og skúrir, en hvessir síðdegis með rigningu í flestum landshlutum. Hiti breytist lítið. Á laugardag: Suðvestanátt og rigning eða skúrir, en léttskýjað austanlands. Hiti 4 til 12 stig. Á sunnudag (hvítasunnudagur): Útlit fyrir að það gangi í ákveðna suðaustanátt með rigningu um landið sunnan- og vestanvert.
Veður Mest lesið Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Erlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Fá engar bætur fyrir stolin bíl Innlent Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Innlent Hjörtur Torfason er látinn Innlent „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Innlent „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Innlent Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn Innlent Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Innlent Fleiri fréttir Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolin bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Úlfar hættir sem lögreglustjóri Ráðherra hafnaði loftslagsrannsókn vegna ófullnægjandi lagaramma Hafnar því alfarið að hafa lekið gögnunum Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Fólk varað við aukinni hættu á gróðureld Sala á Íslandsbankabréfum hafin og Jón Óttar sakar Ólaf Þór um leka Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Miðhúsabraut lokuð eftir að ekið var á vegfaranda á hlaupahjóli Yfir þrjú hunduð eftirskjálftar Mál Oscars sé barnaverndarmál en ekki útlendingamál Sjá meira