Að segja samstarfsfélaga að hann lykti illa Rakel Sveinsdóttir skrifar 26. maí 2020 09:00 Vond lykt af samstarfsfélaga getur verið erfitt mál að takast á við. Vísir/Getty
Þau eru margslungin málin sem geta komið upp í vinnunni okkar. Að segja samstarfsfélaga að hann lykti illa er án efa eitt af viðkvæmu og flóknu málunum. Þessi samstarfsfélagi getur verið kona eða karl og vonda lyktin getur átt sér ýmsar skýringar. Stundum er það svitalykt eða vond líkamslykt af óþrifnaði. Stundum er vond lykt viðvarandi af fatnaði, jafnvel fúkkalykt, þar sem rót vandans er þvottavélin sjálf sen þetta er algengt vandamál margir gera sér ekki grein fyrir (hér eru nokkur góð ráð til að hreinsa vélina). Eins getur það verið reykingalykt sem stundum virkar eins og súr og þung reykingalykt þegar fatnaður er þveginn of sjaldan. Síðan er það aldurstengd lykt því með aldrinum getur líkamslykt bæði aukist og breyst. Líkamlegir kvillar geta líka verið skýringar. Sem dæmi má nefna getur komið töluverð lykt af þvagleka þótt hann sé ekki mikill hjá fólki. Eins getur fólk átt við einhvern vanda þar sem vond lykt er af kynfærum. Og enn aðrir glíma við mikla táfýlu en eru samt gjarnir á að fara úr skóm innan um samstarfsfélaga. Að taka á málunum Það gerir engum gott að taka ekki á þessum málum og láta eins og ekkert sé. Best er að stjórnandinn taki það á sig að eiga við viðkomandi samtal og vandi sig þar vel við. Eða svo náinn samstarfsfélagi og vinur að skilaboðunum er hægt að koma áleiðis, án þess að særa nokkurn. Barbara Pachter er höfundur bókarinnar „The Power of Positive Confrontation: The Skills You Need to Handle Conflicts at Work, Home, Online and in Life.“ Hún gefur stjórnendum eftirtalin góð ráð fyrir það samtal sem stjórnendur þurfa að taka til að taka á málum sem þessum. Regla númer eitt er að stjórnandi gefi sér það aldrei fyrirfram að vita skýringarnar á lyktinni en fyrir samtalið mælir hún með eftirfarandi: Vertu undirbúin/n Það er ekki hægt að setjast niður og ræða mál sem þetta án þess að vera með ákveðna sýn um það hvernig samtalið eigi að vera. Eitt ráðið er að tala á svipuðum nótum og gert er þegar ræða þarf stefnu vinnustaðar um snyrtilegan klæðnað. Eins þarf stjórnandinn að vera við því búinn að skýringar á lykt stafi af kvilla, jafnvel tímabundnu ástandi samhliða því að vera búinn að afla sér upplýsinga um af hverju vond lykt getur stafað og hverjar lausnirnar gætu verið. Veldu sérstaklega vel stað og stund Vond lykt er svo persónulegt mál að vanda þarf sérstaklega til þegar valinn er staður og stund. Þetta er því ekki hefðbundið starfsmannasamtal þar sem viðkomandi er kallaður inn á skrifstofu og á síðan að halda áfram að vinna eins og ekkert hafi í skorist. Pachter mælir með því að samtalið sé tekið í lok vinnudags þannig að þegar að samtalinu lýkur, er tími til að fara beint heim. Þetta er samtal, ekki niðurrif Starfsmaðurinn má ekki upplifa samtalið sem skammir eða lítillækkun. Að sögn Pachter er því góð leið að byrja samtalið á því að draga fram mikilvægi starfsmannsins og hrósa fyrir frammistöðu. Stjórnandinn þarf síðan að ganga hreint til verks og láta vita að hún/hann þurfi að ræða viðkvæmt og erfitt mál þar sem ætlunin er hvorki að móðga né særa. Pachter mælir með því að stjórnandinn beri upp erindið en nefni strax einhverjar lausnir. Til dæmis bara það að mögulega snúist þetta bara um að fara oftar í sturtu, nota svitalykaeyðir reglulega undir hendurnar eða athuga hvort hreinsa þurfi þvottavélina. Stjórnandinn má þó ekki yfirtaka samtalið því mikilvægt er að hlusta vel á það hvað starfsmaðurinn hefur sjálfur að segja og reyna að að tryggja að honum/henni líði sem best í þessum óþægilegu aðstæðum. Oft hefur starfsmaðurinn þörf á því að segja eitthvað sjálfur eða skýra sína hlið út. Það sem má alls ekki gera Stjórnandinn má alls ekki segja við viðkomandi að samstarfsfólkið á vinnustaðnum hafi verið að kvarta yfir ólykt og það skýri út hvers vegna stjórnandinn er að eiga þetta samtal. Að gera það getur valdið starfsmanninum mikla vanlíðan sem auðvelt er að forðast.
Stjórnun Góðu ráðin Mest lesið Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk Viðskipti innlent „Algjört siðleysi“ Neytendur Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Viðskipti innlent S4S-veldið tekur við Lindex Viðskipti innlent Nýtt gjald á bíómiða í vefsölu Neytendur Bíllinn þremur milljónum dýrari Viðskipti innlent Danir lengra komnir í að nýta spuna á vinnustöðum Atvinnulíf Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Viðskipti innlent Lindex lokað á Íslandi Viðskipti innlent Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Danir lengra komnir í að nýta spuna á vinnustöðum Leigja frekar en að kaupa: „Ég þarf ekki að eiga allt“ 996 vinnuvikan að ryðja sér til rúms á ný (72 klukkustundir) Slúbbertar og enn verri sögur, afreksfólk og ástin Algengustu áramótaheitin 2026 og góð ráð til að standa við þau Trendin 2026: Gervigreindin mikilvæg og laun mögulega auglýst Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Persónuleg áætlanagerð fyrir 2026 aldrei verið jafn auðveld og nú Algeng meiðsli fótboltamanna kveikjan að appinu sem hún þróaði Góður hárblástur og smink á morgnana á undanhaldi Stjarna í 66 ár, myndabikar, húmor í þeim gömlu og jólasveinakennsla Sá elsti í heiðurshópnum níutíu ára Sjónvarpseríur á samfélagsmiðlum og gjörbreytt notkun á Facebook og Instagram „Beindu skammbyssu að höfðinu á mér og sögðu: I will kill you“ Framkvæmdastjóri Bónus: „Ég er svona „aulahúmor“-stríðinn“ Spilavinir í vinnunni: Efla samskipti, samvinnu og hrista saman hópinn Jafnvægi heimilis og vinnu: „Lífið er meira en titill“ Sjá meira