Innlent

Fjórir handteknir með aðstoð nýja lögreglubílsins

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Nýr landamæraeftirlitsbíll Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var afhentur í upphafi mánaðar.
Nýr landamæraeftirlitsbíll Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var afhentur í upphafi mánaðar. vísir/JKJ

Lögreglan segist hafa handtekið fjóra karlmenn á byggingasvæði í Garðabæ í gær vegna gruns um að vegabréf þeirra væru fölsuð. Nýr landamæraeftirlitsbíll er sagður hafa komið að góðum notum. 

Í orðsendingu lögreglunnar segir að grunur leiki á að mennirnir, sem allir eru sagðir vera erlendir ríkisborgarar, hafi fengið skráningu á grundvelli falsaðra vegabréfa og hafi því ekki tilskilin leyfi til að starfa hér á landi. Þeir hafi verið færðir á lögreglustöð og yfirheyrðir.

Lögreglan segist jafnframt hafa ráðist í húsleit vegna málsins þar sem hún á að hafa fundið fölsuð vegabréf. Mönnunum er nú gert að sæta svokallaðri tilkynningaskyldu, auk þess sem Útlendingastofnun á að hafa verið upplýst um málið. Þá eiga einnig að hafa verið höfð afskipti af tveimur hælisleitendum sem lögreglan segir að hafi ekki haft heimild til vinnu. 

Landamærabíllinn bjóði upp á vinnustaðaeftirlit

Við aðgerðirnar í gær segist lögreglan hafa notað nýja bifreið sem er einkum ætluð fyrir landamæraeftirlit á höfuðborgarsvæðinu og er búin tækjum til þess. Þar á meðal tæki til að skoða og sannreyna skilríki. Bíllinn og búnaðurinn eru til kominn vegna athugasemda Evrópusambandsins um að embættið uppfyllti ekki skilyrði í Schengen-samstarfinu. Í bílnum er meðal annars vegabréfaskanni sem er tengdur við Schengen-upplýsingakerfið og Interpol.

Þar að auki býður hann upp á vinnustaðaeftirlit eins og það sem framkvæmt var í Garðabæ í gær. „Skoðað verkamenn og skilríki þeirra í sérstökum búnaði í bílnum og fundið út hvort þeir séu sem þeir segjast vera,“ sagði Jón Karl Þórisson aðstoðaryfirlögregluþjónn í samtali við fréttastofu þegar bíllinn kom til landsins þann 8. maí síðastliðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×