Ytri Rangá opnaði í morgun Karl Lúðvíksson skrifar 20. júní 2020 08:40 Ytri Rangá opnaði í morgun. Veðrið er nú ekki eins gott og á þessari mynd sem er úr safni. Mynd / Garðar
Veiði hófst í nokkrum ám í morgun og þar á meðal Ytri Rangá en nokkur spenna hefur verið með opnun hennar eftir að góðar veiðitölur úr systuránni. "Það er alla vega einn lax kominn á land í Rangárflúðum veit ég en ég er ekki búinn að heyra í hinum stöngunum" sagði Bjarki Már Jóhannsson yfirleiðsögumaður í Ytri Rangá þegar við náðum honum uppteknum við bakkann. "Ég er við Djúpós núna og það eru einhverjir átta laxar sem ég sé hérna núna en svo sáum við nokkra laxa líka við Ægissíðufoss svo þetta lítur ágætlega út, veðrið mætti vera betra" bætti Bjarki við. Það er nokkuð síðan fyrstu laxarnir sáust í Ytri Rangá og eftir því sem reynsluboltarnir segja er hann nokkuð fljótur upp að þeim veiðistöðum sem liggja við sleppitjarnirnar sem seiðin koma úr. Staðir eins og Hellisey, Rangárflúðir, Djúpós, Stallmýrarfljót og Hrafnaklettar eru líklega þeir staðir sem mest verður reynt á í dag en þar sem þetta eru mjög vanir menn sem eru að opna ánna má kannski reikna með að allir hyljir og breiður fái í það minnsta eitt rennsli með flugunni. Við bíðum spennt eftir tölum dagsins.
Stangveiði Mest lesið Stórbleikja úr Eyjafjarðará Veiði Hítará óveiðandi dögum saman; 400 laxar á þurru Veiði Léleg vorveiði í Bretlandi og Skotlandi Veiði 100 fiskar á land fyrsta daginn Veiði Mikið af ref á veiðislóðum Veiði Tungufljótsdeilan til lykta leidd Veiði Afar dræm veiði í ánum á vesturlandi Veiði Stórlax á land á land á urriðasvæðinu neðan virkjunar Veiði 23 laxar í fyrsta hollinu í Miðfjarðará Veiði Óvenju góður júní í Hítará Veiði