Bein útsending: Blaðamannafundur vegna eldsvoðans Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir og Sylvía Hall skrifa 26. júní 2020 16:30 Ásgeir Þór Ásgeirsson, yfirlögregluþjónn, og Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri. Vísir/Vilhelm Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og lögreglan á höfuðborgarsvæðinu boða til blaðamannafundar í bílasal slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins í Skógarhlíð 14 í dag klukkan 17:30. Fundurinn verður í beinni útsendingu á Vísi og verður hægt að fylgjast með gangi mála í vaktinni hér að neðan. Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri og Ásgeir Þór Ásgeirsson yfirlögregluþjónn munu fara yfir atburði gærdagsins þegar hús við Bræðraborgarstíg brann til kaldra kola og þrír létust í brunanum. Tveir liggja á gjörgæslu en einn hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsi. Tveir voru handteknir á vettvangi fyrir að hlýða ekki fyrirmælum lögreglu en þeim var sleppt eftir skýrslutökur. Einn er í haldi í þágu rannsóknarinnar og mun liggja fyrir í dag hvort sóst verði eftir gæsluvarðhaldsúrskurði. Þá hefur Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hafið rannsókn vegna brunans en ekki er um sakamálarannsókn að ræða heldur beinist hún að slökkvistarfi og aðstæðum í húsinu.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og lögreglan á höfuðborgarsvæðinu boða til blaðamannafundar í bílasal slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins í Skógarhlíð 14 í dag klukkan 17:30. Fundurinn verður í beinni útsendingu á Vísi og verður hægt að fylgjast með gangi mála í vaktinni hér að neðan. Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri og Ásgeir Þór Ásgeirsson yfirlögregluþjónn munu fara yfir atburði gærdagsins þegar hús við Bræðraborgarstíg brann til kaldra kola og þrír létust í brunanum. Tveir liggja á gjörgæslu en einn hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsi. Tveir voru handteknir á vettvangi fyrir að hlýða ekki fyrirmælum lögreglu en þeim var sleppt eftir skýrslutökur. Einn er í haldi í þágu rannsóknarinnar og mun liggja fyrir í dag hvort sóst verði eftir gæsluvarðhaldsúrskurði. Þá hefur Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hafið rannsókn vegna brunans en ekki er um sakamálarannsókn að ræða heldur beinist hún að slökkvistarfi og aðstæðum í húsinu.
Bruni á Bræðraborgarstíg Mest lesið Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Innlent Logi fordæmir ummæli Jóns Gnarr um Vísi Innlent Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent Telja sig vita hvernig maðurinn lést Innlent Létu Cassie lesa upp kynferðisleg skilaboð til Diddy Erlent „Algjört þjófstart á sumrinu“ Innlent Hestamenn láta tæpa hálfa milljón stöðva sig Innlent Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Erlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Borgin rukkar hestamenn og þeir hætta við reiðina Innlent Fleiri fréttir Villta vestrið ríki á íþróttaviðburðum og kalla eftir reglum Ísland geti orðið fyrirmyndarríki í fangelsismálum Setja rúma tvo milljarða í stækkun leikskóla Umfangsmeiri bankasala og áfengi á íþróttaviðburðum Fljúgandi trampólín fauk á bíla í Grafarvogi Borgin verði ítrekað af viðburðum vegna gjaldtöku Telja sig vita hvernig maðurinn lést Nýja göngubrúin yfir Sæbraut fer upp í næstu viku Logi fordæmir ummæli Jóns Gnarr um Vísi Vilja aðra tillögu í stað Völugötu sem átti að koma í stað Bjargargötu „Algjört þjófstart á sumrinu“ Úlfari var boðin staða lögreglustjóra á Austurlandi Yfirmaður herafla NATO á Íslandi Hestamenn láta tæpa hálfa milljón stöðva sig Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Lögreglustjórafélagið fjallar um starfslok Úlfars Enn þjarmað að Flokki fólksins vegna styrkjamálsins Hægir verulega á fjölgun erlendra ríkisborgara Borgin rukkar hestamenn og þeir hætta við reiðina Kaupa frekar gervigreindartónlist í þætti en frumsamið efni Laupur stelur senunni í Árbæjarlaug Bein útsending: Ísland og Norðurslóðir í nýjum heimi – Ógnir og öryggi, áskoranir og tækifæri Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Enn einn skjálftinn austan við Grímsey Vara við bikblæðingum á Bröttubrekku Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Verðhækkanir varpa skugga á grillsumarið mikla Isavia fær áheyrn um hvort reka hafi mátt mann vegna aldurs Laupur vekur mikla athygli sundlaugagesta í Árbæjarlaug Fórnuðu gömlu húsi fyrir slökkviliðsæfingu Sjá meira