„Atvik“ í úranauðgunarstöð í Íran Kjartan Kjartansson skrifar 2. júlí 2020 13:16 Úranauðgunarstöðin í Natanz í Íran. Myndin er úr safni. Vísir/EPA
Kjarnorkustofnun Írans segir að „atvik“ hafi átt sér stað í Natanz-úranauðgunarstöðinni en að enginn mannskaði hafi orðið og að ekki sé hætta á mengun. Slökkviliðs- og björgunarmenn voru sendir í stöðina. Natanz-stöðin er um 250 kílómetra suður af höfuðborginni Teheran. Ramazanali Ferdowsi, ríkisstjóri þar, segir að eldur hafi komið upp í henni. Talsmaður kjarnorkustofnunarinnar gaf ekki frekari upplýsingar um atvikið en fullyrti að það hefði átt sér stað í byggingu sem var í smíðum og að ekki væri hætti á ferðum, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Á myndum sem stofnunin birti sáust skemmdir á þaki og sviðnir veggir byggingar þar sem hún segir að uppákoman hafi átt sér stað. Alþjóðakjarnorkustofnunin (IAEA) segist vita af uppákomunni en býst ekki við að hún hafi áhrif á störf sín. Stofnunin fylgist með því hvort að írönsk stjórnvöld virði ákvæði kjarnorkusamnings heimsveldanna sem var gerður árið 2015. Samningurinn setur mörk við hversu mikið Íranir geta auðgað úran til að koma í veg fyrir að þeir geti framleitt kjarnavopn.
Íran Mest lesið „Þau ákváðu einfaldlega að hann væri minna fatlaður í Garðabæ“ Innlent Segir nýtt að konan sé tekin á beinið Innlent Fimmtán ára piltur ók undan lögreglu um allt höfuðborgarsvæðið Innlent Óttast að lítið þurfi til svo bíllinn springi í loft upp Innlent Fær um 90 milljónir fyrir verkið sem hópur Eyjamanna vill ekki sjá Innlent „Þjóðin á ekki fiskinn í sjónum, fiskurinn á sig sjálfur í sjónum“ Innlent Karl Wernersson ákærður fyrir að leyna verðmætum listaverkum fyrir skiptastjóra Innlent Lalli Johns er látinn Innlent Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Innlent Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli Erlent Fleiri fréttir Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið Láta bandarískan gísl lausan Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vilja leggja réttarríkið til hliðar „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Vopnahléið heldur en vígahugur ríkir enn Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Skammvinnu vopnahléi virðist lokið Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar Sovéskt geimfar hrapaði til jarðar eftir misheppnað ferðalag til Venus Fundu mögulega eitt af 67 fórnarlömbum hálfri öld síðar Kínverskir verktakar fá ekki að bora skipagöng í Noregi Vopnahlé í höfn milli Indlands og Pakistans Kim lofar hermenn sína sem börðust í Kúrsk sem hetjur Átökin ná nýjum hæðum Borgarstjóri í Bandaríkjunum handtekinn vegna mótmæla Yfirvöld Mexíkó kæra Google Gamlar nektarmyndir felldu glænýjan þjóðaröryggisráðgjafa Svíþjóðar Gerir Pirro að ríkissaksóknara í DC Bein útsending: Fyrsta messa nýs páfa Býst við að bróðir sinn Leó feti í fótspor Frans Stigmögnunin heldur áfram Hvað vitum við um Leó páfa? Norðmenn undirbúi sig undir möguleg stríðsátök Sjá meira