Fór þetta fram hjá þér í nýju Eurovision-myndinni? Vésteinn Örn Pétursson skrifar 3. júlí 2020 09:07 Rachel McAdams í hlutverki íslensku söngkonunnar Sigrit Ericksdottir. Í bakgrunni má sjá hinn helming húsvíska tvíeykisins Fire Saga, Lars Ericksong. Hann er leikinn af Will Ferrell. John Wilson/Netflix
Eins og mikið hefur verið fjallað um síðustu daga er nú komin út nýjasta mynd Bandaríska stórleikarans Will Ferrell, og fjallar hún um Eurovision-keppnina, sem Íslendingar dýrka margir og dá. Í myndinni bregður Ferrell sér í hlutverk misheppnaða húsvíska söngvarans Lars Ericksongs (sem er ekki alveg íslenskt nafn, en kannski næstum því). Í hinu aðalhlutverki myndarinnar er síðan Rachel McAdams í hlutverki Sigrit Ericksdottir (þessi nöfn eru steypa, ég veit). Myndin er aðgengileg á efnisveitunni Netflix, sem framleiddi hana. Bandaríski fjölmiðillinn New York Times hefur nú birt samantekt um það sem áhorfendur myndarinnar gætu hafa misst af. Í umfjöllun NYT er búið að tína til hitt og þetta sem hinn almenni áhorfandi, sem kannski er ekki svo fróður um Eurovision, gæti hafa misst af. Hér að neðan verður stiklað á stóru yfir það sem gæti hafa farið fram hjá fólki. Eins og gefur að skilja inniheldur afgangur þessarar greinar spennuspilli. Ef þú hefur ekki séð Eurovision Song Contest: The Story of Fire Saga, og vilt ekki fyrir nokkra muni láta spilla fyrir þér spennunni, hættu þá að lesa. Þú gætir til dæmis lesið þetta hérna í staðinn. Jæja. Byrjum þá. Það fyrsta sem NYT fjallar um er hamstrahjólið sem Lars Ericksong hleypur í á meðan Fire Saga syngur lagið sitt, Double Trouble, í undanúrslitunum. Eins og áhorfendur myndarinnar vita endaði hamstrahjólsatriðið með ósköpum, þegar trefill Sigrit festist í því og allt fór í klessu. Atriðið virðist þó hafa sótt innblástur í Eurovisionatriði Úkraínu frá 2014. Þar sést dansari einmitt hlaupa í svipuðu hjóli og Lars, á meðan söngkonan Mariya Yaremchuk söng. Helsti munurinn á atriðinu og því sem sést í myndinni er að hjólið fór ekki út í áhorfendaskarann og Yaremchuk hafði vit á því að vera ekki með allt of langan trefil. Samsöngurinn góði Þá er tæpt á því að margar af Eurovision-stjörnum fortíðar hafi komið fram í samsöngsatriðinu í teiti Rússans geðþekka Alexander Lemtov. Þar bresta partígestir í mjög undarlegan keðjusamsöng, þar sem mörgum af þekktustu andlitum Eurovision-keppninnar síðustu ár bregður fyrir. Má þar nefna sigurvegarann frá 2012, Loreen, sem heillaði Evrópu upp úr skónum með Euphoria. Eins sést fiðluleikaranum Alexander Rybak bregða fyrir, en hann stal einmitt sigrinum af Jóhönnu Guðrúnu árið 2009 með seiðandi fiðluleik sínum. Þá mátti einnig sjá fleiri sigurvegara keppninnar, til dæmis Nettu frá Ísrael, Jamölu frá Úkraínu og Conchitu Wurst frá Austurríki. Samsöngur er alltaf góð hugmynd, í það minnsta virtust allir skemmta sér konunglega í myndinni.Jonathan Olley/Netflix Okkar ástkæra ylhýra NYT bendir í umfjöllun sinni á að Sigrit hafi viljað syngja á móðurmálinu, íslensku. Það sé vandamál sem margir keppendur Eurovision standi frammi fyrir á hverju ári, það er hvort syngja skuli á móðurmálinu, eða reyna að veiða fleiri atkvæði með því að syngja á ensku. Í því samhengi minnist NYT á Hatara, sem sungu lagið sitt Hatrið mun sigra, á íslensku í keppninni á síðasta ári. Hópurinn endaði í 10. sæti. Þá er minnst á einhvern mesta harmleik í Eurovision-sögu Íslands, keppnina 2020 sem aldrei var haldin. NYT bendir réttilega á að Ísland hefur aldrei unnið keppnina, en í ár hafi verið teikn á lofti um að það myndi breytast. Framlagi Íslands í ár, laginu Think About Things, með Daða og Gagnamagninu, var spáð fáránlega góðu gengi. Faraldur kórónuveirunnar kom hins vegar í veg fyrir að keppnin færi fram í Rotterdam í ár. Það er því alls óvíst hvenær Íslendingar geta aftur farið að gera sér vonir um að fara sigurför um Evrópu. Fleira sem tekið var til í samantektinni er eitthvað sem flestir Íslendingar sem horft hafa á Eurovision ættu að kannast við. Til dæmis er bent á það að nágrannalönd eru gjörn á að standa saman og veita hvort öðru mikil stig, og oft langtum fleiri en lönd fá að meðaltali frá öðrum Evrópuríkjum.
Eurovision Netflix Eurovision-mynd Will Ferrell Mest lesið Aðstoðarmennirnir og ástin Lífið „Ég var mjög reiður út í heiminn í marga mánuði“ Lífið Stjórnarandstaðan hræðist ekkert meðan ríkisstjórnin þori ekki út úr húsi Lífið Einhleypan: Grænkeri sem hrífst af hugrekki Makamál Segist vera nasisti sem elskar Hitler Lífið Lítil þolinmæði fyrir hrekk Audda Lífið Mamma mætti á frumsýningu Fjallsins Lífið Selur fantaflotta íbúð sem hann keypti af Birni Braga Lífið Berglind Festival, Hallgrímur Helga og Unnsteinn á sumarhryllingnum Lífið Finnur þú fyrir uppþembu eða óþægindum eftir mat? Lífið samstarf Fleiri fréttir Jóhannes Haukur fer mikinn í Marvel stiklu Svaraði kallinu frá Ben Stiller Ljósbrot hlaut aðalverðlaun í Gautaborg Vestfirski hryllingurinn: „Þetta er það erfiðasta sem ég hef gert“ Þau eru tilnefnd fyrir verstu kvikmyndagerðina Sjón og Eggers leiða hesta sína saman í nýjum varúlfahryllingi Deila um gervigreind skekur Hollywood í aðdraganda Óskarsins Sigurjón minnist David Lynch: „Jonni, við verðum að gera eitthvað fyrir Ísland“ Kvikmyndirnar sem beðið er eftir 2025 Embla og Timothée Chalamet glæsileg á dreglinum Krefur Disney um tíu milljarða dala Þakkar fleiru en Demi Moore fyrir langþráð metár Vestfirski hryllingstryllirinn frumsýndur vestanhafs Snerting skaut Deadpool ref fyrir rass 2024 Sjá meira