Hvað verður í nýjum Mercedes-Benz S-Class Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 9. júlí 2020 07:00 Mercedes-Benz S-Class Plug-in Hybrid.
Nýr Mercedes-Benz S-Class er væntanlegur seinna á árinu. Spennan er yfirleitt gríðarleg þegar nýr S-Class er kynntur. Í S-Class er yfirleitt að finna nýstárlega tækni sem verður orðin staðalbúnaður í nýjum bílum eftir 10-15 ár. Nýr S-Class verður fyrsti bíllinn með aðra kynslóð af afþreyingarkerfinu MBUX. Kerfið á að vera búið gervigreind og mun geta lært á notendur. Hugmynd að útliti innra rýmis. Afþreyingarkerfið hefur verið hannað með mikilli áherslu á snertilausar skipanir, handahreyfingar eiga að duga til að gera flest alla hluti, svo ökumaður geti einbeitt sér að akstrinum. Það eru 27 færri takkar í nýjum væntanlegum S-Class en eru í þeim núverandi. Ef ökumaður notar frasann „I'm tired“ eða „ég er þreyttur,“ á íslensku, þá fer af stað atburðarás til að hressa ökumanninn við og halda honum enn frekar við efnið. Hins vegar ef farþegi notar sama frasa þá fær hann einskonar vellíðunar og afslöppunar prógramm. Mercedes tók sérstaklega fram að á stærstu markaðssvæðum S-Class, sem eru Bandaríkin og Kína situr eigandi bílsins yfirleitt aftur í. Nýr S-Class er hannaður með það í huga. Sem dæmi má nefna að farþegar í aftursætum hafa aðganga að sama afþreyingarkerfi og er fram í. Kerfinu er stýrt á þremur snertiskjáum sem hvern og einn er hægt að fá með OLED tækni. Öryggi Útgönguviðvörun er í bílnum. Hún virkar þannig að lýsingin inn í bílnum blikkar rauðu ef einhver ætlar að opna hurð og það er að koma farartæki aðvífandi í blindum punkti. Þá geta sætin skynjað hvort barnabílstólar eru rétt í sætinu og festir með öruggum hætti. Bíllinn getur sjálfur stillt sætin fyrir ökumann, sem og speglana. Þá getur hann dregið frá og fyrir þegar ökumaður lítur yfir öxl sér. Eins opnar bíllinn og lokar topplúgu eftir handahreyfingum ökumanns. Það verður áhugavert að sjá í fyllingu tímans hvað af þessum tækniútfærslum skila sér áfram til næstu kynslóða bifreiða. ABS og loftpúðar komu fyrst fram á Mercedes-Benz S-Class ásamt sjálfstrekkjandi öryggisbeltum, svo dæmi séu tekin.
Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Allt of margir með hugann annars staðar í umferðinni Innlent Óeirðir í Valensía og kallað eftir afsögn ráðamanna Erlent Missti stjórn á bílnum þegar klæðingin umvafði dekkin Innlent Baráttan hafin á TikTok: Traktor í skeifunni, kaldar kveðjur og endurkoma Innlent Hætta sem sáttasemjarar í deilu Ísraela og Hamas Fréttir Ætlar 1750 kílómetra á þrektækjum á einni viku í minningu vina Innlent Yazan og fjölskylda leita að nýju húsnæði Innlent Bjartsýn eftir fund í Virginíu vegna Söndru sem afplánar 37 ára dóm Innlent Lögreglan bannaði bjór á B5 Innlent