Tottenham Hotspur hafði betur gegn Arsenal í baráttunni um Norður-Lundúnir í dag. Lokatölur 2-1 þökk sé sigurmarki Toby Alderweireld þegar lítið var eftir af leiknum. Að venju voru fleiri spjöld en mörk þegar þessi lið mætast en alls fóru átta gul spjöld á loft í dag.
Alexandre Lacazette kom gestunum í Arsenal yfir á 16. mínútu leiksins með þrumuskoti en forystan entist aðeins í þrjár mínútur. Þá jafnaði Heung-Min Son metin fyrir Tottenham og fleiri yrðu mörkin ekki í fyrri hálfleik.
Þegar tíu mínútur voru til leiksloka fengu heimamenn hornspyrnu. Son tók hana og sendi fyrir markið þar sem Alderweireld stangaði knöttinn í netið og staðan orðin 2-1. Var þetta fyrst mark Belgans á heimavelli síðan árið 2016.
Toby Alderweireld has scored his 1st home goal since v Monaco in Sept 2016 - had gone 71 apps without a goal at any of Spurs 3 home stadiums since pic.twitter.com/rXzFKavotM
— Sky Sports Statto (@SkySportsStatto) July 12, 2020
Arsenal tókst ekki að jafna metin og lærisveinar José Mourinho fögnuðu góðum sigri, lokatölur 2-1. Tottenham kemst þar með upp fyrir Arsenal í töflunni en liðið er nú með 52 stig í 8. sæti á meðan Arsenal er sæti neðar með 50 stig.
Sigurinn lyftir Tottenham yfir Arsenal í töflunni en liðin sitja í 8. og 9. sæti deildarinnar með 52 og 50 stig.