Veiðin í Eystri Rangá hefur verið alveg ótrúleg síðustu daga en dagurinn í gær toppaði tímabilið hingað til.
Það er ekkert lát á göngum í Eystri Rangá þessa dagana og toppnum á göngunum er líklega ekki náð þar sem það er nóg eftir af tímabilinu. Dagurinn í gær var hreint úr sagt frábær en alls veiddust 149 laxar í ánni. Við heyrðum í einum af þeim veiðimönnum sem var við veiðar og var okkur tjáð að veiðin hefði verið alveg ótrúleg á sumum svæðum og af þeim var líklega svæði 1 best en þar veiddust 31 lax á tvær stangir í gær.
Veiðinni er ennþá aðeins misskipt á milli svæða sem er ekkert óeðlilegt á þessum tíma. Seldir hafa verið stakir dagar og komast veiðimenn þá á tvö svæði. Það er líklega það eina sem einhverjir hafa viljað hafa á annan veg, þ.e.a.s. þriggja tíma skiptingar til að komast betur yfir ánna sem telur alls níu svæði. Það verður spennandi að sjá hvernig tölurnar breytast í Eystri Rangá næstu daga en við spáðum því að hún verði komin yfir 1.000 laxa á mánudaginn og ef þetta mok heldur áfram þá er ljóst að það gæti bara vel ræst.