Goðsögnin Jack Charlton látinn Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 11. júlí 2020 23:00 Jack Charlton á HM 1990 sem fram fór á Ítalíu. Ray McManus/Getty Images
Jack Charlton - einn af lykilmönnum Englands er liðið varð heimsmeistari árið 1966 - lést í gær, 85 að aldri. Jack lék á sínum tíma 35 leiki fyrir enska landsliðið og skoraði í þeim sex mörk. Var hann algjör lykilmaður er liðið landaði sínum eina heimsmeistaratitli ásamt bróðir sínum Sir Bobby Charlton. Jack myndaði eitt besta miðvarðarpar í sögu Englands með Bobby Moore. England vann Vestur-Þýskaland 4-2 í úrslitum HM 1966 framlengdum leik. Þó Jack hafi mögulega ekki náð sömu hæðum og bróðir sinn Bobby þá er hann samt sem áður goðsögn í enskri knattspyrnu. Á meðan Bobby lék nær allan sinn feril með Manchester United þá lék Jack með erkifjendum þeirra í Leeds United. Alls lék Jack 773 leiki fyrir Leeds á þeim 23 árum sem hann var hjá félaginu. Varð hann bæði Englands- og bikarmeistari með liðinu. Eftir að skórnir fóru á hilluna gerðist Jack þjálfari og stýrði meðal annars Middlesborough, Sheffield Wednesday og Newcastle United ásamt írska landsliðinu frá 1986 til 1996. Fór hann með írska liðið á tvö heimsmeistaramót og eitt Evrópumót. Charlton greindist með krabbamein á síðasta ári en hann hafði einnig barist við Alzheimer-sjúkdóminn um þónokkuð skeið. Hann lést svo í gær. Jack var á sínum tíma sæmdur OBE-orðu breska konungsveldisins. Öll lið ensku úrvalsdeildarinnar vottuðu Jack virðingu sína með mínútu þögn fyrir leiki dagsins.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn Íslenski boltinn Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Handbolti Ísak hættur með ÍR Körfubolti Stuðningsmenn Liverpool rifja upp gamlar syndir Coote Enski boltinn Angulo látinn aðeins tuttugu og tveggja ára að aldri Fótbolti „Eitthvað sem maður mun muna eftir alla ævi“ Fótbolti „Viðurkennt að svona gerum við ekki“ Körfubolti Heilsan ástæða þess að Árni lætur af störfum Körfubolti Elanga ekki í landsliðshóp Svía og neitar að svara þjálfaranum Fótbolti Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Íslenski boltinn Fleiri fréttir Lampard sótti um starfið hjá Coventry Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Angulo látinn aðeins tuttugu og tveggja ára að aldri Liverpool langlíklegast til að verða meistari samkvæmt ofurtölvunni „Eitthvað sem maður mun muna eftir alla ævi“ Hlín fór á kostum og finnur fyrir áhuga: „Hef ekki tekið ákvörðun“ Hareide segir Ødegaard milli steins og sleggju Stuðningsmenn Liverpool rifja upp gamlar syndir Coote Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn Lineker hættir með Match of the Day eftir tímabilið Elanga ekki í landsliðshóp Svía og neitar að svara þjálfaranum Nkunku til sölu þrátt fyrir að vera markahæstur Pogba við það að rifta samningi sínum við Juventus Nistelrooy yfirgefur Man United með tilkomu Amorim Fékk símtal frá Arteta en bætti Ödegaard í hópinn Í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að kýla dómara Myndband sýnir dómara urða yfir Liverpool og kalla Klopp kuntu Hlín og Guðrún báðar tilnefndar: „Það er engin eins og hún“ Heimir í vandræðum með flókinn þjóðsöng: „Ég mun ná þessu“ Hlín í keppni við sjálfa sig um besta markið Frekari breytingar á landsliðshópnum Fundað um framtíð Guardiola í vikunni Amorim getur ekki byrjað alveg strax í nýju vinnunni Arteta svekktur eftir jafntefli á Brúnni: „Snýst um að vinna“ Inter klúðraði gullnu tækifæri til að komast á toppinn Arftaki De Rossi entist í aðeins átta leiki „Frammistaðan var góð“ Nistelrooy þakklátur en veit ekki hvað tekur nú við Orri Steinn spilaði hálftíma í sigri á toppliði Barcelona Sjá meira